Kambaröst SU 200

1497. Kambaröst SU 200. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Kambaröst SU 200 var smíðuð í Noregi árið 1977 og var 487 brl. að stærð. Eigandi var Hraðfrystihús Stöðvarfjarðar hf.á Stöðvarfirði. Kambaröstin var seld til Namibíu árið 2002, þá í eigu Samherja eftir nokkrar sameiningar fyritækja. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í … Halda áfram að lesa Kambaröst SU 200 →

Skagfirðingur SK 4

1265. Skagfirðingur SK 4 ex Vigri RE 71. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Skagfirðingur SK 4 hét upphaflega Vigri RE 71 og var smíðaður í Póllandi fyrir Ögurvík hf. Reykjavík. Vigri kom í fyrsta skipti til heimahafnar í Reykjavík þann 24. október árið 1972 og systurskipið Ögri RE 72 kom þann 13. desember sama ár. Vigri var … Halda áfram að lesa Skagfirðingur SK 4 →

Brimnes RE 27

2770. Brimnes RE 27 ex Vesttind. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2015. Brimnes RE 27 hét upphaflega Vesttind og var smíðað hjá Solstrand AS í Tomrefjørd í Noregi árið 2003. Brim hf. keypti togarann, sem er 70,1 metrar að lengd, 14,6 metrar á breidd og mælist 2,880 BT að stærð, frá Noregi árið 2007. Brimnes var selt til Rússlands árið 2018. Með því að … Halda áfram að lesa Brimnes RE 27 →

Snæfugl SU 20

1976. Snæfugl SU 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Snæfugl SU 20 var smíðaður hjá Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S í Noregi fyrir Skipaklett hf. á Reyðarfirði. Snæfugl kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Reyðarfirði 24. janúar 1989. Skipaklettur hf. og Síldarvinnslan sameinuðust árið 2001.  Um tíma var skipið leigt skosku útgerðarfyrirtæki og bar þá nafnið … Halda áfram að lesa Snæfugl SU 20 →

Hulda Björnsdóttir GK 11 kom til heimahafnar í gær

3027. Hulda Björnsdóttir GK 11. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2024. Hulda Björnsdóttir GK 11, nýr ísfisktogari Þorbjarnar hf., kom til heimahafnar í Grindavík í gær og tók Jón Steinar þessar myndir. Togarinn var smíðaður hjá skipasmíðastöðinni Astilleros Armon í Gijon á Spáni norðanverðum. Hulda Björnsdóttir GK 11 er 1,864 BT að stærð. lengd hennar er … Halda áfram að lesa Hulda Björnsdóttir GK 11 kom til heimahafnar í gær →

Hulda Björnsdóttir GK 11 afhent í dag

3027. Hulda Björnsdóttir GK 11. Ljósmynd Þorbjörn hf. 2024. Það var stór dagur í skipasmíðastöðinni í Gijón á Spáni í dag þegar Hulda Björnsdóttir GK 11 var afhent Þorbirni hf. að viðstöddum fulltrúum Þorbjarnar og skipasmíðastöðvarinnar Astilleros Armon. Frá þessu segir á Fésbókarsíðu fyrirtækisins sem veitti góðfúslegt leyfi til að myndbirtingar hér. Þar segir jafnframt: … Halda áfram að lesa Hulda Björnsdóttir GK 11 afhent í dag →

Sigurbjörg ÁR 67 landaði í Eyjum

3018. Sigurbjörg ÁR 67. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2024. Sigurbjörg ÁR 67, nýjasta skip Ísfélagsins, landaði í fyrsta skiptið í Vestmannaeyjum í vikunni og tók Tryggvi Sigurðsson þessa mynd þegar hún hélt aftur til veiða í gær. Sigurbjörg var smíðuð hjá Celiktrans skipasmíðastöðinni í Istanbul í Tyrklandi og kom til landsins um miðjan júlímánuð. Skipið er … Halda áfram að lesa Sigurbjörg ÁR 67 landaði í Eyjum →