Helgi Héðinsson 90 ára í dag

Helgi Héðinsson um borð í Fram ÞH 62 þann 6. apríl 2018. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Helgi Héðinsson sjómaður á Húsavík er níræður í dag en hann fæddist á Húsavík og hefur átt hér heima alla sína tíð. Helgi hefur stundað sjómennsku frá unga aldri og er enn að, fer með Óðni félaga sínum og frænda … Halda áfram að lesa Helgi Héðinsson 90 ára í dag →

Litlanes ÞH 3

2771. Litlanes ÞH 3 ex Muggur HU 57. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Litlanes ÞH 3 kemur hér að landi í Grindavík í marsmánuði á þessu ári. Litlanes var smíðað árið 2000 Sólplasti í Sandgerði og hét í upphafi Muggur KE 57 . Síðar HU 57.  Fagranes útgerð ehf. á Þórshöfn, sem er í eigu Ísfélags Vestmannaeyja hf., keypti bátinn … Halda áfram að lesa Litlanes ÞH 3 →

Siggi Valli og Kalli í Höfða

2376. Siggi Valli ÞH 44 ex Mávur SI 76. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. 24. júní árið 2005 fór ég í siglingu út á Skjálfanda þeirra erinda að mynda kajakræðarann Kjartan Jakob Hauksson fyrir Morgunblaðið. Farið var á Aþenu ÞH 505 og á útleiðinni mættum við tveim línubátum á landleið og smellti ég nokkrum myndum af … Halda áfram að lesa Siggi Valli og Kalli í Höfða →

Nanna Ósk II ÞH 133

2793. Nanna Ósk II ÞH 133. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2010. Nanna Ósk II ÞH 133 kom ný til heimahafnar á Raufarhöfn þann 5. nóvember árið 2010 en þessar myndir voru teknar daginn eftir. Það var Útgerðarfélagið Stekkjavík ehf. á Raufarhöfn sem lét smíða bátinn, sem er af Cleopatra 38 gerð, hjá Trefjum í Hafnarfirði. Að … Halda áfram að lesa Nanna Ósk II ÞH 133 →

Hlíf GK 250

663. Hlíf Gk 250 ex Hlíf ÞH 80. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hlíf GK 250 hét upphaflega Lómur ÞH 80 og var smíðaður af Ernst Pettersen á Seyðisfirði 1960. Eigandi hans var Sveinbjörn Jóhannsson Þórshöfn á Langanesi. Lómur var 7. brl. að stærð, smíðaður úr eik og furu. Báturinn var seldur Tryggva Óskarssyni á Þórshöfn árið … Halda áfram að lesa Hlíf GK 250 →

Addi Afi GK 302

2701. Addi Afi GK 302. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Addi afi GK 302 er hér á siglingu á Eyjafirði 25. febrúar árið 2006 en þarna var báturinn glænýr. Á fréttavef Morgunblaðsins mátti lesa þessa frétt sama dag:  Sýndu Akureyringum Adda afa  JE vélaverkstæði á Siglufirði hefur afhent nýjan fiskibát til nýs eiganda, Útgerðarfélags Íslands. Báturinn … Halda áfram að lesa Addi Afi GK 302 →