3000. Álsey VE 2 ex Hardhaus H-120-AV. Ljósmynd Valdimar Halldórsson 2022. Álsey VE 2, skip Ísfélags Vestmannaeyja, kom með makrílfarm til Þórshafnar á Langanesi í gærmorgun. Álsey VE 2 hét áður Hardhaus H-120-AV en Ísfélag Vestmannaeyja hf. keypti það frá Noregi og kom það til landsins í febrúar sl. Skipið sem smíðað var árið 2003 … Halda áfram að lesa Álsey á Þórshöfn
Flokkur: Nóta- og togskip
Sigurður og Heimaey landa makríl á Þórshöfn
2883. Sigurður VE 15 - 2812. Heimaey VE 1. Ljósmynd Valdimar Halldórsson 2022. Mikið líf er nú í uppsjávarvinnslu Ísfélags Vestmannaeyja á Þórshöfn og margir sem komið hafa til vinnu síðustu daga. Vinnsla úr fyrsta makrílfarmi sumarsins úr Sigurði VE 15 hófst að morgni 27. júlí og Heimaey VE 1 kom til hafnar 29. júlí. … Halda áfram að lesa Sigurður og Heimaey landa makríl á Þórshöfn
Álsey VE 2
3000. Álsey VE 2 ex Hardhaus H-120-AV. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2022. Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndir í nótt þegar Dala-Rafn VE 508 og Álsey VE 2 mættust en Álsey var á landleið. Álsey VE 2 kom til hafnar í Vestmannaeyjum í dag með tæp 1000 tonn af makríl. Álsey VE 2 hét áður Hardhaus H-120-AV … Halda áfram að lesa Álsey VE 2
Gullberg VE 292
2730. Gullberg VE 292 ex Gardar H-34-AV. Ljósmynd Óskar Franz 2022. Óskar Franz tók á dögunum þessar flottu myndir af Gullberginu VE 292, nýja uppsjávarveiðiskipi Vinnslustöðvarinnar, sem áður hét Gardar H-34-AV. Á vef VSV segir ma. um skipið: Gullberg er gríðarlega öflugt skip, smíðað árið 1998 en er mikið endurnýjuð í stóru og smáu, vel … Halda áfram að lesa Gullberg VE 292
Aðalsteinn Jónsson SU 11 í flotkvínni á Akureyri
2929. Aðalsteinn Jónsson SU 11 ex Libas. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Uppsjávarveiðiskipið Aðalsteinn Jónsson SU 11 frá Eskifirði er þessa dagana í flotkvínni hjá Slippnum á Akureyri. Aðalsteinn Jónsson hét áður Libas og smíðaður árið 2004, hann er 94 metrar að lengd og tæpir 18 metrar á breidd. Eskja hf. á Eskifirði keypti skipið til … Halda áfram að lesa Aðalsteinn Jónsson SU 11 í flotkvínni á Akureyri
Serene LK 297 á Eyjafirði
IMO 9167928. Serene LK 297. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Þessi mynd var tekin sumarið 2006 þegar Serene LK 297 kom til Akureyrar en Samherji hf. hafði þá nýlega fest kaup á skipinu frá Hjaltlandseyjum. Skipið fékk nafnið Margrét EA 710 og hélt þessum fallega rauða lit til ársins 2010 en þá keypti Síldarvinnslan hf. það … Halda áfram að lesa Serene LK 297 á Eyjafirði
Nýja Hoffell SU 80 á Fáskrúðsfirði
IMO 9414709. Hoffell SU 80 ex Asbjörn HG 265. Ljósmynd Bergþór Bjarnason 2022. Nýja Hoffellið er komið inn á Fáskrúðsfjörð í brakandi blíðu og fékk ég þessa mynd senda áðan. Fjallið sem skipið er nefnt eftir gnæfir þarna yfir th. á myndinni. Í dag kl. 14:00 verður móttökuathöfn við Bæjarbryggjuna þar sem hið glæsilega skip … Halda áfram að lesa Nýja Hoffell SU 80 á Fáskrúðsfirði
Sunna SI 67
2061. Sunna SI 67 ex Vaka SU 9. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Sunna SI 67 frá Siglufirði togar hér á rækjuslóðinni um árið og það áður en hún fékk bláa litinn. Sunna SI 67 hét upphaflega Vaka SU 9 og var í eigu Eskfirðings hf. á Eskifirði. Hún var smíðuð á Spáni og kom í fyrsta … Halda áfram að lesa Sunna SI 67
Arnþór á toginu
1030. Arnþór EA 16 ex Björg Jónsdóttir ÞH 321. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Arnþór EA 16 á toginu við rækjuveiðar en hann var gerður út frá Árskógssandi. G. Ben sf. keypti hann þangað árið 1996 og var hann seldur þaðan austur á Djúpavog árið 1999. Seljandi BGB-Snæfell hf. Upphaflega hét skipið Örfirisey RE 14 og smíðað … Halda áfram að lesa Arnþór á toginu
Jón Finnsson RE 506
1742. Jón Finnsson RE 506. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Jón Finnsson RE 506 var smíðaðaður í Shiprepair Yard Gryfia í Stettin í Póllandi árið 1987 fyrir Gísla Jóhannesson útgerðarmann. Kom hann í stað eldra skips sem selt var úr landi. Árið 1995 keypti Ljósavík hf. í Þorlákshöfn skipið sem fékk nafnið Hersir Ár 4. Vinnslustöðin hf. … Halda áfram að lesa Jón Finnsson RE 506









