Capricorn við bryggju

ZDLY. Capricorn FK 050B ex Pescavigo Uno. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Capricorn FK 050B hefur legið við bryggju í Vigoflóanum innanverðum að undanförnu og tók ég þessa mynd í dag. Eftir að ég hafði rölt um ströndina í klukkustund eða svo og tekið myndir fór ég heim til að setja þær inn í tölvuna og … Halda áfram að lesa Capricorn við bryggju →

Cleopatra 33 til gildruveiða á humri afgreidd til Skotlands

Golden Down FR 8. Ljósmynd Trefjar 2019. Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi núna nýverið nýjan Cleopatra bát til Fraserburgh á norðausturströnd Skotlands. Að útgerðinni stendur Gary Noble útgerðarmaður frá Fraserburgh. Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Golden Dawn.  Báturinn, sem er 10 brúttótonn að stærð,  er af gerðinni Cleopatra 33. Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT … Halda áfram að lesa Cleopatra 33 til gildruveiða á humri afgreidd til Skotlands →

Joana Cunha á leið út Vigoflóann

Joana Cunha AN-213-C ex Maria Teixeira. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hér siglir Joana Cunha AN-213-C fram hjá Chapela og út Vigoflóann fyrir stundu. Báturinn var smíðaður árið 1997 í Astilleros Ria de Aviles SL, í Nieva á Norður-Spáni, nálægt Gijon. Hann er 27,30 metrar að lengd og 7 metra breiður. Mælist 212 GT að stærð. Heimahöfn … Halda áfram að lesa Joana Cunha á leið út Vigoflóann →

Mys Cheltinga kom til löndunar

Mys Cheltinga X-0524. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2019. Elvar Jósefsson tók þessa mynd í gær af frystitogaranum Mys Sheltinga X-0524 sem hefur verið að veiðum á Reykjaneshrygg undanfarið. Togarinn er einn fimmtán togara sem smíðaðir voru í Stralsund í Þýskalandi eftir sömu teikningu og togararnir sem smíðaðir voru hjá Sterkoder í Noregi. Þerney var einn þeirra norsksmíðuðu. … Halda áfram að lesa Mys Cheltinga kom til löndunar →

Polar Amaroq á landleið í gærkveldi

Polar Amaroq GR 18-49 ex Gardar. Ljósmynd Sigmund frá Teigum 2019. Færeyingurinn Sigmund frá Teigum tók þessa mynd af Polar Amaroq í gærkveldi en hann er í áhöfn skipsins. Húsvíkingurinn Sigurjón Sigurbjörnsson er það einnig, stýrimaður á skipinu og sendi hann síðuna þessa mynd. Að sögn Sidda voru þeir við síldarleit í grænlensku lögsögunni en … Halda áfram að lesa Polar Amaroq á landleið í gærkveldi →

Lokys KL 926, nýr togari Reyktal

Lokys K 926 ex Qaqqatsiaq GR-6-403. Ljósmynd Magnús Jónsson 2019. Útgerðarfyrirtækið Reyktal keypti nýlega grænlenska frystitogarann Qaqqatsiaq GR-6-403 af Royal Greenland og verður hann gerður út til rækjuveiða. Togarinn, sem hefur fengið nafnið Lokys KL 926, liggur nú í Hafnarfjarðarhöfn þar sem er verið að gera ýmsar endurbætur á honum. Meðal annars verður sett í … Halda áfram að lesa Lokys KL 926, nýr togari Reyktal →

Ný Cleopatra 32 til neta og makrílveiða til Hjaltlandseyja

Endeavour LK 11. Ljósmynd Trefjar 2019. Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi núna á dögunum nýjan Cleopatra bát til Whalsay á Hjaltlandseyjum. Að útgerðinni stendur Jimmy Hutchinson útgerðarmaður og synir hans tveir. Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Endeavour.  Báturinn er 9.6 brúttótonn.  Endeavour er af gerðinni Cleopatra 32 og er fyrsti báturinn sem Trefjar afgreiða af … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 32 til neta og makrílveiða til Hjaltlandseyja →

Nýi Sisimiut kom til Hafnarfjarðar í morgun

Sisimiut GR 6-18. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Í morgun kom grænlenski frystitogarinn Sisimiut GR 6-18 til Hafnarfjarðar og Jón Steinar var þar mættur til að fanga hann á kortið. Sisimiut er annar tveggja frystitogara sem Royal Greenland fær afhenta á þessu ári frá skipasmíðastöðinni í Astilleros de Murueta í Bilbao á Spáni.  Sismiut kom til … Halda áfram að lesa Nýi Sisimiut kom til Hafnarfjarðar í morgun →

Ný Cleopatra 33 til gildruveiða á humri afgreidd til Suðureyja í Skotlandi

Árelía CY 2. Ljósmynd Trefjar.is 2019. Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afrgreiddi núna nýverið nýjan Cleopatra bát til Barraeyju sem er hluti Suðureyja utan við vesturströnd Skotlands. Að útgerðinni stendur Jonathon Boyd útgerðarmaður frá Barra.  Sonur hans Oran Boyd er skipstjóri á bátnum. Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Árelía á íslenska vísu.  Báturinn er 10 brúttótonn … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 33 til gildruveiða á humri afgreidd til Suðureyja í Skotlandi →