Sisimiut í Hafnarfirði

Sisimiut GR6-500 ex Arnar HU 1. Ljósmynd Magnús Jónsson 2019. Grænlenski togarinn Sisimiut GR6-500 kom til Hafnarfjarðar eldsnemma í gærmorgun. Eins og kunnugt er hefur Þorbjörn hf. í Grindavík keypt togarann sem fer nú í slipp og kemur niður sem Tómas Þorvaldsson GK 10. Togarinn var smíðaður í Noregi árið 1992 fyrir Skagstrending hf. á Skagaströnd og hét … Halda áfram að lesa Sisimiut í Hafnarfirði →

Mark ROS 777 í Hafnarfirði

Mark ROS 777. Ljósmynd Magnús Jónsson 2019. Þýski frystitogarinn Mark ROS 777 er í Hafnarfjarðarhöfn og tók Maggi Jóns þessar myndir af honum. Skipið var smíðað í Tersan skipasmíðastöðinni í Tyrklandi og afhent eigandanum, Parlevliet & Van der Plas group í júní 2015. Heimahöfn þess er í Rostock. Mark ROS 777. Ljósmynd Magnús Jónsson 2019. … Halda áfram að lesa Mark ROS 777 í Hafnarfirði →

Veidar M-1-G í Hafnarfirði

LEPY. Veidar M-1-G frá Álasundi. Ljósmynd Magnús Jónsson 2019. Eitt glæsilegasta línuskip Norðmanna, Veidar M-1-G var í Hafnarfjarðarhöfn í gær og tók Maggi Jóns þessar myndir af því. Það var afhent Veidar AS frá skipasmíðastöinni Simek AS í Flekkufirði á mars á síðasta ári. Heimahöfn þess er Álasund. LEPY. Veidar M-1-G frá Álasundi. Ljósmynd Magnús … Halda áfram að lesa Veidar M-1-G í Hafnarfirði →

Qaqqatsiaq GR 6-403 kom til Hafnarfjarðar

Qaqqatsiaq GR 6-403 ex Steffen C. Ljósmynd Óskar Franz 2019. Grænlenski frystitogarinn Qaqqatsiaq GR 6-403 kom til hafnar í Hafnarfirði undir kvöld í gær og tók Óskar Franz þessar myndir af honum. Qaqqatsiaq GR 6-403 var smíðaður hjá Ørskov Christensens Staalskibsværft A/S í Frederikshavn, Danmörku, og afhentur á árinu 2001. Stálvinna smíðinnar fór fram hjá … Halda áfram að lesa Qaqqatsiaq GR 6-403 kom til Hafnarfjarðar →

Mark ROS 777 fyrir utan Grindavík í gær

Mark ROS 777. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2019. Þýski togarinn Mark kom upp undir Grindavík í gær, hverra erinda veit ég ekki en Elvar Jósefsson tók þessar myndir. Skipið var smíðað í Tersan skipasmíðastöðinni í Tyrklandi og afhent eigandanum, Parlevliet & Van der Plas group í júní 2015. Heimahöfn þess er í Rostock Mark ROS 777. … Halda áfram að lesa Mark ROS 777 fyrir utan Grindavík í gær →

Sapphire II kom til Reykjavíkur í vikunni

Sapphire II MK-0360 ex Havstrand M-225-H. Ljósmynd Óskar Franz 2019. Óskar Franz myndaði rússneska frystitogarann Sapphire II MK-360 þegar hann kom til hafnar í Reykjavík í vikunni. Togarinn hét upphaflega Havstrand M-225-H og var smíðaður í Brattvåg Skipsinnredning A/S í Brattvåg. Hann var afhentur í desember 1987 en stöðin í Brattvåg lét smíða skrokkinn hjá … Halda áfram að lesa Sapphire II kom til Reykjavíkur í vikunni →

Aquamarine M-0272 frá Murmansk

Aquamarine M-272 ex Orcades Viking. Ljósmynd Óskar Franz 2019. Rússneski togarinn Aquamarine M-272 kom til hafnar í Hafnarfirði í gærmorgun en Rússarnir eru að undirbúa karfavertíðina á Reykjaneshryggnum. Togarinn, sem er í eigu NOREBO útgerðarrisans, var smíðaður árið 1991 og er með heimahöfn í Murmansk. Smíði þessa skips hófst fyrir Færeyinga hjá P/f Skala Skipasmidja … Halda áfram að lesa Aquamarine M-0272 frá Murmansk →

Mys Cheltinga kom í Hafnarfjörðinn í morgun

Mys Cheltinga X-0524. Ljósmynd Óskar Franz 2019. Frystitogarinn Mys Sheltinga X-0524 frá Kholmsk í Rússlandi kom til Hafnarfjarðar í morgun og lá Óskar Franz fyrir honum þar. Togarinn, sem var afhentur eigendum sínum í janúar 1995, er einn fimmtán togara sem smíðaðir voru í Stralsund í Þýskalandi eftir sömu teikningu og togararnir sem smíðaðir voru … Halda áfram að lesa Mys Cheltinga kom í Hafnarfjörðinn í morgun →

Stapin frá Tóftir

Stapin FD 32 ex Husby Senior M-13-AV. Ljósmynd Óskar Franz 2016. Óskar Franz tók þessar myndir sumarið 2016 og sýna þær færeyska línuskipið Stapin FD 23 frá Tóftum koma til hafnar í Vestmannaeyjum. Þarna voru frændur okkar nýbúnir að kaupa bátinn frá Noregi þar sen hann hét Husby Senior M-13-AV. Hann er 42. metrar að … Halda áfram að lesa Stapin frá Tóftir →