Tveir fyrrum Vísisbátar í Reykjavíkurhöfn

972. Kristín GK 457 - 1030. Klettur GK 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Þessir tveir fyrrum Vísisbátar liggja nú í Reykjavík og bíða verkefna en Kristín GK 457 var seld á dögunum. Um Pál Jónsson GK 7 hefur verið fjallað en hann fékk nafnið Klettur GK 3 og er í eigu Skipaþjónustu Íslands ehf. í … Halda áfram að lesa Tveir fyrrum Vísisbátar í Reykjavíkurhöfn →

Áskell ÞH 48

2958. Áskell ÞH 48. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Áskell ÞH 48 kom með fullfermi til löndunar í Grindavík sl. laugardag og sendi Jón Steinar drónann til móts við hann og úr varð úrvals myndefni. Áskell eru í hópi sjö systurskipa sem norsk skipasmíðastöðin VARD smíðar fyrir íslenskar útgerðir og afhenti á síðasta ári. Útgerð Áskels, Gjögur … Halda áfram að lesa Áskell ÞH 48 →

Bergey að veiðum á Öræfagrunni

2964. Bergey VE 144. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Bergey VE 144 lá fyrir linsunni hjá Hólmgeir Austfjörð í morgun þar sem hún var að veiðum á Öræfagrunni. Bergey var smíðuð í skipasmíðastöð Vard í Aukra í Noregi og er eitt af sjö systurskipum sem skipasmíðastöðin smíðaði fyrir íslensk fyrirtæki og afhenti á síðasta ári. Með … Halda áfram að lesa Bergey að veiðum á Öræfagrunni →

Björgvin EA 311

27. Björgvin EA 311. Ljósmynd Hannes Baldvinsson. Tappatogarinn Björgvin EA 311 er hér á mynd Hannesar Baldvinssonar koma að landi á Siglufirði.  Björgvin var smíðaður í Stralsund í A- Þýskalandi 1958 og kom til heimahafnar á Dalvík á Þorláksmessu það ár. Í Alþýðumanninum sem gefinn var út á Akureyri birtist eftirfarandi frétt þann 30. desember … Halda áfram að lesa Björgvin EA 311 →