Tekið við endanum

1487. Alli Júl ÞH 5 ex Ásbjörg RE 79. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1999. Þessi mynd var tekin í desembermánuði árið 1999 og sýnir Þórð heitinn Ásgeirsson taka á móti endanum hjá Alla Júl ÞH 5 sem sonarsonur hans, Þórður Birgisson, gerði út. Upphaflega hét báturinn Ásbjörg ST 7 frá Hólmavík en hún var síðust í röð 50 … Halda áfram að lesa Tekið við endanum →

Hafdís ÞH 12

5434. Hafdís ÞH 12. Ljósmynd Sigurgeir Smári Harðarson. Ætla má að það sé um hálf öld síðan Geiri Harðar tók þessa mynd af Hafdísi ÞH 12 á Skjálfanda. Baldur Pálsson bátasmiður á Húsavík smíðaði Hafdísi ÞH 12 fyrir Jóstein Finnbogason árið 1951 og var hún sveinstykki Baldurs í bátasmíðinni. Hafdís var smíðuð úr furu og eik, … Halda áfram að lesa Hafdís ÞH 12 →

Örn KE 13

1012. Örn KE 13 ex Örn SK 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sumarið 1987 kom loðnuskipið Örn KE 13 úr miklum breytingum sem framkvæmdar voru í V-Þýskalandi. Helstu breytingarnar voru lenging á skipinu um sex metra, sett á það perustefni og því slegið út að aftan og breytt fyrir togveiðar. Á myndinn er Örn að koma til hafnar á Húsavík en … Halda áfram að lesa Örn KE 13 →