Björn Hólmsteinsson ÞH 164

2641. Björn Hólmsteinsson ÞH 164 ex Sæborg SU 48. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Björn Hólmsteinsson ÞH 164 sést hér á þessum myndum koma til hafnar á Raufarhöfn í dag en hann er á grásleppunetum þessa dagana. Það er Hólmsteinn Helgason ehf. sem gerir bátinn út en fyrirtækið keypti bátinn til Raufarhafnar í ársbyrjun 2014 en … Halda áfram að lesa Björn Hólmsteinsson ÞH 164

Grásleppan er lífið fyrir neðan bakkann þessa dagana

Grásleppubátarnir Aron ÞH 105 og Aþena ÞH 505. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Grásleppan er lífið fyrir neðan bakkann á Húsavík þessa dagana og ekki amalegt að kíkja á bryggjuna í vorblíðunni líkt og í dag. Grásleppubátarnir Aron ÞH 105 og Aþena ÞH 505 komu að landi á sama tíma en Guðmundur A. Hólmgeirsson gerir Aron … Halda áfram að lesa Grásleppan er lífið fyrir neðan bakkann þessa dagana

Skarðsvík SH 205 við bryggju á Siglufirði

TFXY. Skarðsvík SH 205. Ljósmynd Hannes Baldvinsson. Hér liggur Skarðsvík SH 205 við bryggju á Siglufirði, vel hlaðin af síld. Myndina tók Hannes Baldvinsson. Skarðsvík þessi átti sér ekki langa sögu, var smíðuð 1960 í Danmörku fyrir Sigurð Kristjónsson ofl. en eigandi frá 8. maí 1961 var Skarðsvík h/f á Rifi á Snæfellsnesi. Skarðsvík var 86 brl. að … Halda áfram að lesa Skarðsvík SH 205 við bryggju á Siglufirði

Anna EA 305 við bryggju á Akureyri.

2870. Anna EA 305 ex Carimsa Star. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Línu- og netaskipið Anna EA 305 liggur hér við bryggju og bíður þess sem verða vill, hvað svo sem það verður. Myndin var tekin í gær. Anna var smíðuð í Noregi árið 2001 og hét áður Carisma Star. Hún er 52. metrar að lengd, 11 … Halda áfram að lesa Anna EA 305 við bryggju á Akureyri.

Wilson Cork kom með áburð

IMO 9178460. Wilson Cork. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Flutningaskipið Wilson Cork kom til Húsavíkur í kvöld og lagðist að Norðurgarðinum þar sem skipað verður upp áburði. Wilson Cork siglir undir fána Barbadoseyja og er með heimahöfn í Bridgetown. Skipið, sem er 99,9 metrar að lengd og 12,8 metra breitt, mælist 2,999 brúttótonn að stærð. Það … Halda áfram að lesa Wilson Cork kom með áburð

Loðnulöndun í Grindavík

Keflvíkingur KE 100 við bryggju í Grindavík. Ljósmynd Gunnar Hallgrímsson 1973. Hér koma myndir frá loðnulöndun úr Keflvíkingi KE 100 í Grindavík árið 1973, að ég tel. Myndirnar voru teknar í sama skipti og myndirnar af nótaviðgerðinni sem birtust um daginn. Myndirnar tók Gunnar Hallgrímsson frá Sultum í Kelduhverfi en hann var skipverji á Keflvíkingi. … Halda áfram að lesa Loðnulöndun í Grindavík