1925. Byr GK 59 ex Hrappur SF 170. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Byr GK 59 lá fyrir dróna Jóns Steinars í gærmorgun þegar báturinn kom að landi í Grindavík. Byr hét upphaflega Spörri GK 170 og var smíðaður í Bátasmiðjunni sf. í Hafnarfirði árið 1988. Báturinn. sem er tæpar 10 brl. að stærð, er í eigu … Halda áfram að lesa Byr GK 59
Author: Hafþór Hreiðarsson
Hinni ÞH 70
1547. Hinni ÞH 70 ex Sveinn Sveinsson BA 325. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Á þessum myndum gefur að líta Hinna ÞH 70 þegar hann kom úr rækjuróðri til hafnar á Húsavík snemma sumars 2003. Hinni ÞH 70 hét upphaflega Neisti HU 5 og var smíðaður í Básum hf. í Hafnarfirði árið 1979. Hann er 24 … Halda áfram að lesa Hinni ÞH 70
Búi EA 100
1380. Búi EA 100 ex Fjalar ÍS 54. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Búi EA 100 hét upphaflega Fjarðará KE 23 og var smíðaður árð 1971 í Skipasmíðastöð Nóa Kristjánssonar á Akureyri. Á vef Árna Björns Árnasonar, aba.is segir: Smíðaður fyrir Sigurbjörn Sigurjónsson, Keflavík, sem átti bátinn í tvö ár. Samkvæmt ritinu "Íslensk skip" þá var báturinn dekkaður þriggja … Halda áfram að lesa Búi EA 100
Klakkur við bryggju á Húsavík
1472. Klakkur ÍS 903 ex Ísborg II ÍS 260. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Skuttogarinn Klakkur ÍS 903, sem stundar rækjuveiðar, liggur við Norðurgarðinn á Húsavík og var myndin tekin fyrir stundu. Tjaldtangi ehf. á Ísafirði er eigandi Klakks sem er með heimahöfn á Flateyri. Klakkur hét um stuttan tíma Ísborg II ÍS 260 en hét … Halda áfram að lesa Klakkur við bryggju á Húsavík
Bylgja VE 75 – Myndasyrpa
2025. Bylgja VE 75. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Jón Steinar tók þessa myndasyrpu af Bylgju VE 75 í gær þegar hún fór, kom og fór aftur frá Grindavík. Eins og Jón segir: Hér er Bylgja að fara út fyrr í dag, en hún kom inn til löndunar í Grindavík um síðastliðna helgi. Ástæðan fyrir löngu … Halda áfram að lesa Bylgja VE 75 – Myndasyrpa
Haförn að veiðum á Skjálfanda
1979. Haförn ÞH 26 ex Þorsteinn BA 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Haförn ÞH 26 frá Húsavík er hér að dragnótaveiðum á Skjálfandaflóa í dag. Uggi fiskverkun ehf. keypti bátinn til Húsavíkur haustið 2010 en hann hét áður Þorsteinn BA 1 frá Patreksfirði. Haförn ÞH 26 hét upphaflega Faxafell GK 110, því næst Blíðfari GK 275, Mundi SF … Halda áfram að lesa Haförn að veiðum á Skjálfanda
Feðgarnir á Bárði
2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Þá er Bárður SH 81 farinn úr Skjálfandanum að sinni amk., en ég tók þessar myndir þegar hann kom til löndunar á Húsavík í gær. Ég hef legið fyrir honum og myndað eins og lesendur síðunnar hafa eflaust tekið eftir og er ég nokkuð sáttur með afraksturinn. … Halda áfram að lesa Feðgarnir á Bárði
Gandí VE 171
263. Gandí VE 171 ex Þorbjörn II GK 541. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Gandí VE 171 hét upphaflega Þorbjörn II GK 541 og var smíðaður árið 1964 fyrir Hraðfrystihús Þórkötlustaða h/f í Grindavík. Smíðin fór fram í Djupvík í Svíþjóð en báturinn var 168 brl. að stærð. Hann var endurmældur síðar og mældist þá 131 brl. … Halda áfram að lesa Gandí VE 171
Landað í kvöldblíðunni
2965. Bárður SH 81 í Húsavíkurhöfn í kvöld. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það var logn og blíða á Húsavík í dag og það sama var upp á teningnum í kvöld þegar Bárður SH 81 var að landa afla sínum. Aftan við Bárð lá Hafborgin sem landaði síðdegis og ef minni mitt svíkur ekki eru þetta tveir … Halda áfram að lesa Landað í kvöldblíðunni
Blængur á Skjálfanda
1345. Blængur NK 125 ex Freri RE 73. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Frystitogarinn Blængur NK 125 frá Neskaupstað kom inn Skjálfandann síðdegis í dag og stoppaði um stund framan við höfnina á Húsavík hvar léttabátur fór að bryggju. Heppnin var með mér er ég sá til skólabróðurs sem var að koma að landi eftir að … Halda áfram að lesa Blængur á Skjálfanda









