Björn Jónsson ÞH 345

7461. Björn Jónsson ÞH 345 ex Arnar SH 157. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Sómabáturinn Björn Jónsson ÞH 345 hét upphaflega Jói á Nesi II SH 259 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar fyrir Pétur F. Karlsson í Ólafsvík. Það var árið 1998 og árið 2006 var báturinn lengdur. Í ársbyrjun 2012 er báturinn kominn með … Halda áfram að lesa Björn Jónsson ÞH 345 →

Kristín ÞH 15

2461. Kristín ÞH 15 ex Elvis GK 60. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Handfærabáturinn Kristín ÞH 15 kemur hér að landi á Raufarhöfn sl. fimmtudag en það er Rán ehf. sem gerir bátinn út. Að því fyrirtæki stendur Hörður Ingimar Þorgeirsson en hann keypti bátinn frá Grindavík sumarið 2015. Þar hét hann Elvis GK 60 en … Halda áfram að lesa Kristín ÞH 15 →

Páll Jónsson GK 7

2957. Páll Jónsson GK 7. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2023. Jón Steinar tók þessar myndir af línuskipinu Páli Jónssyni GK 7 þegar hann kom úr síðustu veiðiferð kvótaársins. Vísir hf. i Grindavík lét smíða skipið í Póllandi og kom það til landsins í janúar árið 2020. 2957. Páll Jónsson GK 7. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundson … Halda áfram að lesa Páll Jónsson GK 7 →

Sævar kom og fór

2378. Hríseyjaferjan Sævar. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Hríseyjarferjan Sævar kemur hér að og fer frá Árskógssandi á dögunum en hún er með heimahöfn í Hrísey. Sævar var smíðaður í Reykjavík árið 1999 en kom fyrst til Hríseyjar sumarið 2000. Sævar mælist 149 BT að stærð. 2378. Hrísejarferjan Sævar. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson 2023. Með því að … Halda áfram að lesa Sævar kom og fór →

Seifur og Aidaluna

2955. Seifur - IMO 9334868. Aida Luna. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Hér koma myndir sem teknar voru fyrir viku síðan á Akureyri og sýna hafnsögubátinn Seif og farþegaskipið Aidaluna. Aidaluna er 69,203 GT að stærð og var smíðað í Þýskalandi árið 2009 . Lengd skipsins er 251,9 metrar og það er 37,6 metrar breitt. Skipið … Halda áfram að lesa Seifur og Aidaluna →

Ný Cleopatra 33 til Frakklands

Circle D’Or SN 937536. Ljósmynd Trefjar 2023. Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afhenti nýlega Cleopatra 33 bát til Le Croisic á vesturströnd Frakklands.Að útgerðinni stendur David Le Dreau sem einniger skipstjóri á bátnum. Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Circle D’Or eða Gullni hringurinn sem er hnýttinn tilvísun í gullna hringinn á Íslandi.  Circle D’Or er af … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 33 til Frakklands →

Lilja BA á Arnarfirði

3037. Lilja BA. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2023. Lilja BA siglir hér frá Bíldudal og út á Arnarfjörðinn en þar eru fiskeldiskvíar sem báturinn þjónar. Fiskeldisfyrirtækið Arnarlax ehf. er eigandi bátsins sem smíðaður var árið 2020. Hann er tvíbytna, 14 metrar að lengd, og mælist 45,45 BT að stærð. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Lilja BA á Arnarfirði →