1470. Haförn HU 4 ex Dagbjört SU 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1988. Hafsúlan HU 4 frá Hvammstanga er hér í slipp á Siglufirði um árið. Held að myndin sé tekin 1988 en má vera að það hafi verið ári síðar. Báturinn hét upphaflega Hafsúlan RE 77 og var smíðuð í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. í Hafnarfirði … Halda áfram að lesa Haförn HU 4 í slipp á Siglufirði
Author: Hafþór Hreiðarsson
Viðar og Öxarnúpur
1353. Viðar ÞH 17 - 1538. Öxarnúpur ÞH 162. Ljósmynd Hafþór Hreiðarson. Hér liggja þeir við bryggju á Raufarhöfn Viðar ÞH 17 og Öxarnúpur ÞH 162 það var þeirra heimahöfn. Viðar var í eigu Hólmsteins Helgasonar h.f., Raufarhöfn og um bátinn má lesa hér. Jökull hf. keypti Öxarnúp til Raufarhafnar árið 1992 en um bátinn … Halda áfram að lesa Viðar og Öxarnúpur
Myndasyrpa af Dúdda Gísla á landleið í dag
2999. Dúddi Gísla GK 48 ex Hulda GK 17. Ljósmynd Jón Steinar 2023. Línubáturinn Dúddi Gísla GK 48 frá Grindavík kom úr róðri í dag og tók Jón Steinar þessa myndasyrpu af bátnum á landleið. Samkvæmt ljósmyndara var hann var hálf tregur hjá honum í dag, afli dagsins um 5 tonn. Dúddi Gísla GK 48 … Halda áfram að lesa Myndasyrpa af Dúdda Gísla á landleið í dag
Myndasyrpa af Jóhönnu Gísladóttur koma að landi í dag
2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar 2023. Jón Steinar tók þessa flottu myndasyrpu í dag þegar Jóhanna Gísladóttir GK 357 kom til hafnar í Grindavík. Hún var nánast með fullfermi eða 211 kör sem gerir um 70 tonn, uppistaða aflans er þorskur, ýsa og ufsi. Nú tekur við páskafrí … Halda áfram að lesa Myndasyrpa af Jóhönnu Gísladóttur koma að landi í dag
Geirfugl GK 66
2500. Geirfugl GK 66 ex Oddur á Nesi ÓF 176. Ljósmynd Jón Steinar 2023. Hér sjáum við línubátinn Geirfugl GK 66 á landleið til Grindavíkur á dögunum. Geirfugl GK 66 hét upphaflega Ósk KE 5. Hann var smíðaður hjá Seiglu ehf. í Reykjavík árið 2004 og er af gerðinni Seigur 1400. Hann er 14 metra … Halda áfram að lesa Geirfugl GK 66
Ölver ÍS 432
2101. Ölver ÍS 432 ex Ölver ÍS 38. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Hér gefur að líta Ölver ÍS 432 við slippkantinn á Akureyri í gær en báturinn mun fá nýtt nafn innan skamms eftir eigendaskipti. Upphaflega Magnús SH 205 eins og áður hefur komið fram á síðunni en síðustu ár hefur báturinn verið brúkaður til … Halda áfram að lesa Ölver ÍS 432
Ágúst RE 61 í Reykjavíkurhöfn
1260. Ágúst RE 61 ex Jóhann Pálsson SU 30. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2001. Þessi mynd var tekin í blíðskaparveðri við Reykjavíkurhöfn í aprílbyrjun fyrir 22 árum síðan. Í forgrunni hennar er Ágúst RE 61 og handan við hann má m.a sjá og glitta í Reykjaborgina, Hafnarbergið, Eyrúnu, Þerney og Sæbjörgu. Um Ágúst er það að … Halda áfram að lesa Ágúst RE 61 í Reykjavíkurhöfn
Bjarni Ólafsson AK 70
1504. Bjarni Ólafsson AK 70. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér er unnið að því að taka Bjarna Ólagsson AK 70 frá Akranesi upp í slipp í Reykjavík. Mig minnir að þetta sé haustið 1987. Um Bjarna Ólafsson AK 70, sem síðar fékk nafnið Neptúnus ÞH 361, má lesa nánar hér. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Bjarni Ólafsson AK 70
Helga RE 49
91. Helga RE 49 ex Haförn GK 321. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Hér lætur rækjubáturinn Helga RE 49 úr höfn eftir löndun á Siglufirði um árið. Mikið aflaskip á rækjunni Helgan. Báturinn var smíðaður í Noregi árið 1956 en keyptur til landsins árið 1958 af Jóni Kr. Gunnarssyni í Hafnarfirði sem nefndi bátinn Haförn GK 321. … Halda áfram að lesa Helga RE 49
Tryggvi Eðvars á landleið
2400. Tryggvi Eðvars SH 2 ex Hafdís SK 4. Ljósmynd Jón Steinar 2023. Línubáturinn Tryggvi Eðvars SH 2 er hér á landleið til Grindavíkur í kvöld en hann er í eigu Nesvers ehf. og er með heimahöfn í Ólafsvík. Hann hefur verið að rótfiska að undanförnu og var aflinn í dag 12-13 tonn sem fengust … Halda áfram að lesa Tryggvi Eðvars á landleið









