Heimaey VE 1

1035. Heimaey VE 1 ex Náttfari RE 75. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Heimaey VE 1 hét upphaflega Náttfari ÞH 60 og var smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Barðann hf. á Húsavík í Boizenburg í Austur-Þýskalandi. Náttfari kom nýr til heimahafnar á Húsavík í aprílmánuði árið 1967 og skipstjóri á honum var Pétur Stefánsson. Náttfari var lengdur og yfirbyggður árið … Halda áfram að lesa Heimaey VE 1

Landað í morgunblíðunni

2370. Sigrún Hrönn ÞH 36. - 2783. Ásdís ÞH 136. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Eins og segir hér í færslunni á undan kom grásleppubáturinn Ásdís ÞH 136 með góðan afla til hafnar á Húsavík í gærkveldi. Þegar hafist var handa við að landa úr bátnum í morgun kom að landi, og undir hinn kranann, strandveiðibáturinn … Halda áfram að lesa Landað í morgunblíðunni

Ásdís ÞH 136

2783. Ásdís ÞH 136 ex Ingunn Sveinsdóttir AK 91. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Það var góður dagur í dag á Ásdísi ÞH 136 sem stundar grásleppuveiðar frá Húsavík. Báturinn kom að landi í kvöld með á sjöunda tonn en verið var að draga í fyrsta skipti þessa vertíðina. Áður höfðu kallarnir stundað grásleppuveiðar á öðrum … Halda áfram að lesa Ásdís ÞH 136

Gullþór KE 87

721. Gullþór KE 87 ex Sigurbjörg VE 62. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Gullþór KE 87 kemur hér að landi í Keflavík en þaðan var báturinn gerður út um tveggja ára skeið. Gullþór hét upphaflega Pálmar NS 11 og var smíðaður árið 1946 hjá Skipasmíðastöð Austfjarða á Seyðisfirði. Báturinn var míðaður fyrir Þormar hf. Seyðisfirði og var … Halda áfram að lesa Gullþór KE 87

Wilson Drammen á Húsavík

IMO: 9390094. Wilson Drammen ex Kastor. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Flutningaskipið Wilson Drammen kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Norðurgarði þar sem skipað er upp áburði. Wilson Drammen er 2,452 GT að stærð. Lengd skipsins er 89,7 metrar og breidd þess 12,8 metrar. Skipið var smíða árið 2007 og hét áður Kastor. Það … Halda áfram að lesa Wilson Drammen á Húsavík