1491. Pétur Þór BA 44 ex Hringur HU 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Pétur Þór BA 44 er 21 brl. að stærð, smíðaður í Skipasmíðastöð Jóns Jónassonar við Elliðaárvog í Reykjavík árið 1977. Báturinn var smíðaður fyrir Bolvíkinga og hét upphaflega Páll Helgi ÍS 142. Ári síðar var hann kominn til Bíldudals þar sem hann fékk … Halda áfram að lesa Pétur Þór BA 44
Author: Hafþór Hreiðarsson
Sigmundur ÁR 20
784. Sigmundur ÁR 20 ex Hafliði ÁR 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1982. Árið er 1982, vetrarvertíð er í fullum gangi og Sigmundur ÁR 20 kemur hér að landi í Þorlákshöfn. Báturinn hét upphaflega Reykjanes GK 50 með heimahöfn í Hafnarfirði en hann var smíðaður árið 1954 þar í bæ. Nánar tiltekið í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. … Halda áfram að lesa Sigmundur ÁR 20
Maggi Jóns KE 77
1787. Maggi Jóns KE 77 ex Guðrún HF 172. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Maggi Jóns KE 77 kemur hér að landi í Sandgerði í marsmánuði árið 2005. Báturinn hét upphaflega Stundvís ÍS 887 og var smíðaður í Stálvík í Garðabæ árið 1987. Heimahöfn Ísafjörður. Báturinn hefur heitið nokkrum nöfnum í gegnum tíðina en hann hét … Halda áfram að lesa Maggi Jóns KE 77
Draupnir ÁR 21
1171. Draupnir ÁR 21 ex Leifur Halldórsson SH 217. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Draupnir ÁR 21 við bryggju í Þorlákshöfn sem var síðasta heimahöfn bátsins meðan hann var á íslenskri skipaskrá. Um bátinn, sem upphaflega hét Skálafell ÁR 20 á íslenskri skipaskrá, má lesa hér. Draupnir var seldur til Rússlands árið 2007 þar sem hann … Halda áfram að lesa Draupnir ÁR 21
Hvalaskoðunarbátar
Hvalaskoðunarbátar á Húsavík í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hvalaskoðunarbátarnir Garðar og Náttfari koma hér til hafnar á Húsavík í dag eftir ferðir dagsins. Við bryggjuna liggur Fanney en allir bátarnir eru í eigu Norðursiglingar. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can … Halda áfram að lesa Hvalaskoðunarbátar
Smári ÞH 59
778. Smári ÞH 59 ex Smári TH 59. Ljósmynd úr einkasafni. Smári ÞH 59 er hér með síldarnótina á síðunni en myndina tók Óskar Þórhallsson. Smári var smíðaður í Skipasmíðastöð Hafnarfjarðar hf. árið 1949 og var 63 brl. að stærð. Hann var smíðaður fyrir Vísi hf. Húsavík sem gerði bátinn út til ársins 1965 en … Halda áfram að lesa Smári ÞH 59
Bylgja VE 75
2025. Bylgja VE 75. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2023. Skuttogarinn Bylgja VE 75 leggur hér upp í veiðiferð frá Reykjavík í gærkveldi. Bylgja VE 75 var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri fyrir Mattíhas Óskarsson útgerðarmann og skipstjóra árið 1992. Hún hefur alla tíð verið í eigu hans en fyrirtækið heitir Bylgja VE 75 ehf. Bylgja VE … Halda áfram að lesa Bylgja VE 75
Margrét GK 9 við bryggju
3020. Margrét GK 9. Ljósmynd Magnús Jónsson 2023. Hér gefur að líta Margréti GK 9 við bryggju í Njarðvík en Maggi Jóns tók myndina í gær. Margrét kom með flutningaskipi til landsins á dögunum en hún var smíðuð í Tyrklandi fyrir Skipasmíðastö Njarðvíkur hf. sem mun klára bátinn en kaupandi er Stakkavík ehf. í Grindavík. … Halda áfram að lesa Margrét GK 9 við bryggju
Vörðufell GK 205
2008. Vörðurfell GK 205 ex Stefnir ST 47. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Vörðurfell GK 205 var smíðað hjá Trefjaplasti ehf. á Blönduósi árið 1989 og hét upphaflega Stefnir ST 47 með heimahöfn á Drangsnesi. Árið 2001 er báturinn, sem er tæplega 10 brl. að stærð, skráður í Grindavík semVörðufell GK 205 og var gerður þaðan út … Halda áfram að lesa Vörðufell GK 205
Húsavíkurhöfn á fyrri hluta níunda áratugsins
Við Húsavíkurhöfn. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Hér kemur mynd Hreiðars Olgeirssonar frá því á níunda áratug síðustu aldar, sennilega 1984 frekar en 5. Þarna má sjá við bryggju Dagfara, Geira Péturs, Kristbjörgu, Sigþór, Skálaberg, Björgu Jónsdóttur og Sæljón EA 55 auk húsvískra smábáta. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri … Halda áfram að lesa Húsavíkurhöfn á fyrri hluta níunda áratugsins









