2250. Sleipnir. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hafnsögubáturinn Sleipnir heldur hér til móts við flutningaskip sem kom til Húsavíkur í gær. Sleipnir, sem er í eigu Hafnarsamlags Norðurlands, var smíðaður á Akureyri árið 1995 og er 41 BT að stærð. Togkraftur hans er 11,2 tonn. 2250. Sleipnir. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson 2024. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Sleipnir
Author: Hafþór Hreiðarsson
Zaanborg
IMO 9224154. Zaanborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Zaanborg kom til Húsavíkur í dag með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Zaanborg var smíðað Hoogesand í Hollandi árið 2001 og er 4,938 GT að stærð. Skipið er 119 metra langt og breidd þess er 16 metrar. Zaanburg, sem áður hét Vliediep, siglir undir hollensku flaggi með … Halda áfram að lesa Zaanborg
Thun Venren kom í Krossanes
IMO 9739824. Thun Venern. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Tankflutningaskipið Thun Venren kom með eldsneytisfarm í Krossanes í gær og voru þessar myndir teknar þá. Thun Venren var smíðað í Kína árið 2018 og siglir undir sænskum fána með heimahöfn í Lidkoping. Skipið er 150 metrar að lengd, breidd þess er 23 metrar og það mælist … Halda áfram að lesa Thun Venren kom í Krossanes
Selfoss
IMO 9433456. Selfoss ex Shopia. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Selfoss, skip Eimskipafélags Íslands hf., siglir hér út Eyjafjörð í gær. Selfoss er 700 gámaeininga skip, 130 metra langt, 21 metra breitt og 7,464 brúttótonn að stærð. Eimskip keypti skipið, sem smíðað var 2008, árið 2017 en það hét áður Sophia. Selfoss siglir undir færeyskum fána með heimahöfn … Halda áfram að lesa Selfoss
Norwegian Prima
IMO 9823986. Norwegian Prima. Ljósmynd Hafþór Hreiðarssom 2024. Skemmtiferðaskipið Norwegian Prima siglir hér út Eyjafjörð síðdegis í dag. Skipið, sem siglir undir fána Bahamas með heimahöfn í Nassau, var smíðað á Ítalíu og afhent árið 2022. Norwegian Prima er 299 metrar að lengd, breidd þess er 51 metrar og það mælist 143,535 GT að stærð. … Halda áfram að lesa Norwegian Prima
Knörrinn
306. Knörrinn ex Hrönn EA 258. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Knörrinn leggur hér upp í hvalaskoðunarferð á Skjálfanda í morgun. Hér má finna sögu bátsins sem Norðursigling hefur gert út til hvalaskoðunar frá árinu 1995. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them … Halda áfram að lesa Knörrinn
Húni II HU 2
108. Húni II HU 2 ex Sigurður Lárusson SF 110. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það hefur komið mynd af Húna II HU 2 koma að landi í Hafnarfirði á síðunni en nú birtist mynd þar sem hann er að láta úr höfn í Hafnarfirði. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri … Halda áfram að lesa Húni II HU 2
Eyrún ÁR 66
1315. Eyrún ÁR 66 ex Eyrún GK 157.Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Eyrún ÁR 66 kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn um árið en þaðan gerði Erlingur Ævarr Jónsson hana út. Báturinn var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri fyrir Hríseyinga og hét Eyrún EA 157. Nýsmíði nr. 44 hjá stöðinni og var báturinn afhentur 11. júlí árið … Halda áfram að lesa Eyrún ÁR 66
Þrír bláir
Dragnótabátar í Húsavíkurhöfn. Ljósmynd Hafþór Hreiðasson 2024. Blár er allsráðandi litur í íslenska bátaflotanum og hér sjást þrír slíkir í Húsavíkurhöfn sl. sunndag. Hafborgin liggur utan á Þvergarðinum og Geir fyrir innan en Bárður kemur að. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. By clicking on the images … Halda áfram að lesa Þrír bláir
Háey I og Hafborg við bryggju
2995. Háey I ÞH 295 - 2940. Hafborg EA 152. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hér gefur að líta línubátinn Háey I ÞH 295 og neta- og dragnótabátinn Hafborgu EA 152 þar sem þeir lágu við Suðurgarðinn í Húsavíkurhöfn í gærkveldi. Háey I er gerð út af GPG Seafood ehf. á Húsavík en er með heimahöfn … Halda áfram að lesa Háey I og Hafborg við bryggju









