1650. Þingey ÞH 51. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Þingey ÞH 51 er hér í sinni heimahöfn á Kópaskeri vorið 2009 en hún var á grásleppunetum. Þingey var smíðuð árið 1983 í Bátasmiðjunni Vör á Akureyri fyrir Auðun Benediktsson útgerðarmann á Kópaskeri. Auðun gerði bátinn m.a út til rækjuveiða á Öxarfirði. Þingey er 12 brl að … Halda áfram að lesa Þingey á Kópaskeri
Author: Hafþór Hreiðarsson
Smári RE 14
1847. Smári RE 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Smári RE 14 var smíðaður hjá Mánavör hf. á Skagaströnd árið 1987 og hét hann því nafni til ársins 2007. Þá fékk báturinn nafnið Davíð NS 17 með heimahöfn á Vopnafirði og ber það nafn enn þann dag í dag. Báturinn var lengdur árið 1991 og mælist … Halda áfram að lesa Smári RE 14
Sigrún RE 303
1642. Sigrún RE 303 ex Sigrún GK 318. Ljósmynd Hafþór Hreipðarsson 2004. Sigrún RE 303 hét upphaflega Laxdal NS 110 og var með heimahöfn á Seyðisfirði. Báturinn var smíðaður árið 1983 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. á Skagaströnd. Hann mælist tæp 19 BT í dag. Árið 1986 var báturinn seldur frá Seyðisfirði og fékk nafnið … Halda áfram að lesa Sigrún RE 303
Særós RE 207
1546. Særós RE 207 ex Guðbjörn ÁR 34. LjósmyndHafþór Hreiðarsson 2004. Netabáturinn Særós RE 207 er hér á siglingu eftir löndun í Reykjavíkurhöfn þann 29. febrúar árið 2004. Særós, sem heitir Halldór afi GK 222, hét upphaflega Einar Hólm SU 50 og var með heimahöfn á Eskifirði. Báturinn var smíðaður árið 1979 í Skipasmíðastöð Guðmundar … Halda áfram að lesa Særós RE 207
Þorbjörn GK 540
914. Þorbjörn GK 540. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1986. Eikarbáturinn Þorbjörn GK 540 kemur hér að landi í Grindavík á vetrarvertíð árið 1986, ef ég man rétt. Þorbjörn GK 540 var smíðaður árið 1959 í Þýskalandi fyrir Hraðfrystihús Þórkötlustaða hf. sem gerði bátinn út til ársins 1988. Í lok þess árs keypti Skagstrendingur hf. bátinn, sem … Halda áfram að lesa Þorbjörn GK 540
Julíus Havsteen ÞH 1
2262. Júlíus Havsteen ÞH 1 ex Quaasiut II. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson Frystitogarinn Júlíus Havsteen ÞH 1 kemur hér til hafnar á Húsavík eftir veiðferð á rækjuslóð. Útgerðarfélagið Höfði á Húsavík keypti togarann frá Grænlandi árið 1995 og kom hann í fyrsta skipti til heimahafnar í janúarmánuði árið 1996. Togarinn hét upphaflega Quaasiut II og var smíðaður … Halda áfram að lesa Julíus Havsteen ÞH 1
Sveini EA 173
7439. Sveini EA 173 ex Lúkas ÍS 71. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2015. Sveini EA 173 hét upphaflega Lúkas ÍS 71 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar árið 1997. Lúkas var með heimahöfn í Hnífsdal en árið 2005 var hann seldur norður í Eyjafjörð og fékk nafnið Sveini EA 173. Heimahöfnin Dalvík til ársins 2017 en … Halda áfram að lesa Sveini EA 173
Tveir bláir rækjubátar
2150. Árni á Eyri ÞH 205. - 923. Orri ÍS 180. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2013. Hér gefur að líta tvo bláa rækjubáta en myndin var tekin á Húsavík haustið 2013. Orri ÍS 180 liggur við Norðurgarðinn og Árni á Eyri ÞH 205 kemur til hafnar. Byrjað var að farga þessum bátum á dögunum, Árna á … Halda áfram að lesa Tveir bláir rækjubátar
Brynjólfur
93. Brynjólfur ÁR 3 ex Nói EA 477. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1995. Hérna er Nói EA 477 að breytast í Brynjólf ÁR 3 í slippnum á Akureyri en það var árið 1995. Meitillinn hf. í Þorláksshöfn keypti hann af Samherja haustið 1995 en upphaflega hét báturinn Helgi Flóventsson ÞH 77. Hann var smíðaður fyrir Svan … Halda áfram að lesa Brynjólfur
Röst SK 17
1009. Röst SK 17 ex Kristbjörg ÞH 44 . Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Hér er Röst SK 17 að færa sig á milli garða eftir að gert hafði verið við rækjutrollið við Bökugarðinn. Þetta var í september mánuði árið 2012 og bræla úti fyrir en þ.að var rækjuverksmiðjan Dögun á Sauðárkróki sem gerði bátinn út. … Halda áfram að lesa Röst SK 17









