Hákon ÞH 250 í Krossanesi

1059. Hákon ÞH 250 ex heimir SU 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hákon ÞH 250 er hér að landa loðnu í Krossanesi um árið en hann hét upphaflega Heimir SU 100 frá Stöðvarfirði. Heimir var smíðaður fyrir Varðarútgerðina hf. í Noregi árið 1967 og mældist 363 brl. að stærð. Gjögur hf. á Grenivík keypti skipið árið … Halda áfram að lesa Hákon ÞH 250 í Krossanesi →

Nausti NK 97

1115. Nausti NK 97 ex Sigrún ÍS 113. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Nausti NK 97 var gerður út frá Neskaupstað á árunum 1990 - 1992 en upphaflega hét hann Kópur SU 154 frá Reyðarfirði. Báturinn var smíðaður árið 1970 hjá Skipasmíðastöð Marsellíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði og var 38 brl. að stærð. Kópur var seldur til … Halda áfram að lesa Nausti NK 97 →

Hafnarröst ÁR 250

249. Hafnarröst ÁR 250 ex Höfrungur II ÁR 250. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hafnarröst ÁR 250 hét upphaflega Höfrungur III AK 250 frá Akranesi. Höfrungur III, sem var 267 brl. að stærð, var smíðaður fyrir fyrir Harald Böðvarsson & co á Akranesi árið 1964. Smíðin fór fram hjá skipasmíðastöðinni Kaarbös Mek. Verksted í Harstad í Noregi. … Halda áfram að lesa Hafnarröst ÁR 250 →

FDA Finn

IMO:9925693. FDA Finn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Norski báturinn FDA Finn kom til Húsavíkur í morgun en hann þjónustar fiskeldið á Austfjörðum. Báturinn var smíðaður hjá Salthammer Båtbyggeri AS í Noregi árið 2022. FDA Finn er tvýbytna, 24,8 metrar að lengd og breiddin er 13 metrar. Hann mælist 276 GT að stærð. Heimahöfn bátsins er … Halda áfram að lesa FDA Finn →

Steffano í slipp

SKS. Steffano EK 16-01 ex Steffen C GR 6-22. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hér gefur að líta eistneska rækjutogarann Steffano í slippnum í Reykjavík sl. laugardag. Steffano er í eigu Reyktal AS og þeir er skráður í Eistlandi með heimahöfn í Tallinn. Upphaflega Pétur Jónsson RE 69. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Steffano í slipp →

Háey I

2995. Háey I ÞH 295. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Línubáturinn Háey I ÞH 295 tekur hér olíu í haustsólinni á Húsavík en myndin var tekin í septembermánuði þessa árs. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher resolution