Julie kom í dag

IMO 9277307. Julie ex Gures. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Julie kom til Húsavíkur í dag og lagðist að Bökugarði þar sem skipað er upp hráefnisfami fyrir kíslilver PCC á Bakka. Julie, sem kalla má fastagest hér á Húsavík, hafði legið í vari sunnan við Langanes um helgina ásamt Vechtborg sem nú liggur hér framundan … Halda áfram að lesa Julie kom í dag →

Misje Rose kom til Húsavíkur í dag

IMO 9967548. Misje Rose. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Misje Rose kom til Húsavíkur í dag en skipið er með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Misje Verde er nýtt skip,var smíðað á Sri Lanka árið 2024 og siglir undir norsku flaggi. Heimahöfn skipsins er Bergen. Skipið er um 90 metra langt, breidd þess er … Halda áfram að lesa Misje Rose kom til Húsavíkur í dag →

Hákon kom með síld til Hornafjarðar í dag

3059. Hákon ÞH 250 - 2042. Björn lóðs. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2024. Hákon ÞH 250 kom með síld til Hornafjarðar í dag og tók Sigurður Davíðsson þessar myndir við það tækifæri. Þetta er önnur löndun skipsins á Hornafirði og hafði ljósmyndarinn heyrt að aflinn í dag væri um 800 tonn. 3059. Hákon ÞH 250. Ljósmyndir … Halda áfram að lesa Hákon kom með síld til Hornafjarðar í dag →

Eldhamar GK 13

1115. Eldhamar GK 13 ex Nausti NK 97. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Eldhamar GK 13 liggur hér við bryggju í Grindavík um árið en þetta nafn bar báturinn í nokkur ár á tíunda áratug síðustu aldar. Upphaflega Kópur SU 154 154 frá Reyðarfirði og var smíðaður árið 1970 hjá Skipasmíðastöð Marsellíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði. Lesa … Halda áfram að lesa Eldhamar GK 13 →

Rauðsey AK 14

1030. Rauðsey AK 14 ex Örfirisey RE 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rauðsey AK 14 frá Akranesi kemur hér til hafnar í Reykjavík um árið, sennilega haustið 1985. Rauðsey hét upphaflega Örfirisey RE 14 og var  smíðuð í Deest í Hollandi árið 1966. Báturinn var 308 brl. að stærð. Í lok árs 1972 var Örfirisey seld … Halda áfram að lesa Rauðsey AK 14 →