
Hafliði GK 140 kemur hér að landi í Grindavík um árið en báturinn, sem var rúmar 10 brl. að stærð var smíðaður á Fáskrúðsfirði árið 1961.
Upphaflega var Hafliði SU 615 og var með heimahöfn á Fáskrúðsfirði til ársins 1981.
Þá var hann seldur til Þorlákhafnar og varð ÁR 222 og bar þá skráningu í fjögur ár.
Frá árinu 1985 hét hann Hafliði GK 140 með heimahöfn í Grindavík þar sem hann var til ársins 1994 en hann var tekinn af skipaskrá þá um sumarið.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.