Ronja Tind náði í seiði á Stað

IMO 9743801. Ronja Tind ex Oytind. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026.

Í gær kom norski brunnbáturinn Ronja Tind upp að fiskeldi Samherja á Stað rétt vestan við Grindavík til þess að sækja seiði.

Jón Steinar tók þessa myndasyrpu sem nú birtist en Ronja Tind var fest við nýjar fastsetningar baujur sem komið var fyrir fyrr í sumar.

Jón Steinar skrifar á síðu sína:

Félagar úr Björgunarsveitinni Þorbirni aðstoðuðu við að binda skipið og voru snöggir að enda öllum hnútum kunnugir.

Þegar búið var að binda skipið var leiðslan sem fisknum er dælt um dregin út í skipið.

Leiðslunni er haganlega komið fyrir á rúllubraut innan við grjótvarnargarðinn og svo dregin út í gegnum sverara rör sem liggur í gegnum þennan sama garð og út i skipið.

Að dælingu lokinni er leiðslan dregin sömu leið til baka þar sem hún bíður næstu notkunar.

Ronja Tind er smíðuð árið 2015 hjá Aas Mek. Verksted AS í Vestnes í Noregi. Hún hét upphaflega Øytind en fékk núverandi nafn árið 2018.

Skipið er 69,86 metar á lengdina, 12 metrar á breidd og 1747 brúttótonn. Brunnrýmið er 1800 rúmmetrar í tveimur tönkum.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd