Zuiderdam á Skjálfanda í morgun

IMO 9221279. Zuiderdam á Skjálfanda 11. ágúst 2026. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Farþegaskipið Zuiderdam siglir hér inn með Húsavíkurhöfða m kl. sjö í morgun og skömmu síðar lagðist það við krók framundan Húsavíkinni.

Skipið siglir undir fána Hollands með heimahöfn í Rotterdam.

Zuiderdam var smíðað á Ítalíu árið 2002 og er 286 metrar að lengd. Breidd skipsins er 33 metrar og það mælist 82,305 GT að stærð.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd