Einar Guðnason ÍS 303

2997. Einar Guðnason ÍS 303. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026.

Línubáturinn Einar Guðnason ÍS 303 kemur hér að landi á Suðureyri fyrr í sumar en þaðan er báturinn gerður út.

Það er Útgerðarfélagið Norðureyri ehf. sem gerir Einar Guðnason út en hann kom í stað eldri báts sem strandaði við Gölt síðla árs 2019.

Báturinn var afhentur í janúarmánuði árið 2021 og er hann af gerðinni Cleopatra 50 frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd