
Stefnir RE 197 var svokallaður Landsmiðjubátur smíðaður hjá Landsmiðjunni í Reykjavík árið 1953 og hét upphaflega Hallavarður ÍS 150.
Hallvarður, sem smíðaður var fyrir Ísver hf. á Suðureyri við Súgandafjörð, var 36 brl. að stærð.
Árið 1960 fékk báturinn nafnið Stefnir ÍS 150 og áfram átti hann heimahöfn við Súgandafjörð en árið 1973 varð breyting þar á. Þá var báturinn seldur á Drangsnes og hélt nafninu en varð ST 150.
Það var svo árið 1984 að Stefnir var kominn til Reykjavíkur og varð RE 197.
Þrem árum síðar var báturinn seldur til Ólafsvíkur þar sem hann fékk nafnið Friðrik Bergmann SH 240. Árið 1992 hét hann Friðrik Bergmann II SH 262 um tíma en sama ár var báturinn seldur til Þingeyrar.
Þar fékk hann nafnið Máni ÍS 54 og örlög hans urðu þau að hann fórst um 11 sjm. vestur af Barða þann 20. janúar 1994.
Þrír menn voru í áhöfn Mána og komust þeir allir í gúmbjörgunarbát en einn þeirra var látinn þegar skipbrotsmennirnir fundust.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution