Gunnvör ST 39

1396. Gunnvör ST 39 ex Haftindur HF 123. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003.

Gunnhildur ST 39 frá Drangsnesi hét upphaflega Haftindur HF 123 og var smíðuð hjá Básum hf. í Hafnarfirði árið 1974.

Það var árið 1978 sem bátyrinn, sem er tæpar 20 brl. að stærð, var seldur á Drangsnes þar sem hann var til ársins 2003.

Þá fékk hann nafnið Glettingur NS 100 með heimahöfn á Borgarfirði eystra en árið síðar var hann aftur skráður undir sínu fyrra nafni en nú með ST 38.

Frá árinu 2005 hefur hann borið nöfnin Lena GK 42, Lena ÍS 31, Móna GK 303, Gulley KE 31, Jón Skólastjóri KE 31 og síðar GK 60.

Það nafn ber báturinn enn og ef mér skjöplast ekki hefur hann staðið uppi við Skipasmíðastöð Njarðvíkur í einhver ár.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd