
Farþegaskipið National Geographic Explorer kom til Húsavíkur í kvöldsólinni sem á vel við þar sem fyrsta nafn skipsins var Midnatsol.
Skipið var smíðað árið 1982 í Ulstein Verft AS í Noregi og bar nafnið Midnatsol til ársins 2003 er það varð Midnatsol II.
Árið 2005 fékk skipið nafnið Lyngen en frá árinu 2008 hefir skipið, sem er í eigu Lindblad Expeditions skipafélagsins, borið nafnið National Geographic.
NG Explorer er 112 metra langt, 16 metra breitt og mælist 6,471 GT að stærð. Skipið siglir undir fána Bahamas með heimahöfn í Nassau.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution