
Flutningaskipið Wilson Clyde kom til Húsavíkur nú undir kveld og það ekki í fyrsta skipti.
Skipið, sem er með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka, var smíðað í Slóvakíu árið 1998 og hét upphaflega og til októbermánaðar 2001 Dutch Trader.
Síðan Admiral Sun til haustsins 2004 og upp frá því Wilson Clyde.
Wilson Clyde siglir undir fána Barbados og er með heimahöfn í Britgetown. Það er 100 metra langt og 13 metra breitt og mælist 2,999 GT að stærð.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution