
Rækjubáturinn Kristinn Friðriksson SH 3 frá Stykkishólmi er hér við bryggju á Húsavík vorið 2003.
Báturinn, sem var 104 brl. að stærð, var gerður út af Sigurði Ágústssyni ehf. árin 1994-2004 en þá var hann seldur til Írlands.
Uphaflega hét báturinn Siggi Sveins ÍS 29 og var smíðaður árið 1987 hjá Skipasmíðastöð Marsellíusar Bernharðssonar hf. Ísafirði. Hann bar smíðaður fyrir Rækjuverksmiðjuna hf. og var með heimahöfn í Hnífsdal.
Stakkholt hf. í Ólafsvík keypti bátinn árið 1992 og nefndi Halldór Jónsson SH 217. Eins og fyrr er skrifað keypti Sigurður Ágústsson bátinn 1994 og nefndi Kristinn Friðriksson SH 3.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution