Ný Cleopatra 36 til Honningsvåg í Noregi

Maya TF-94-NK. Ljósmynd Trefjar 2023.

Tom Egil Hansen útgerðarmaður fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.

Tom Egil verður sjálfur skipstjóri á bátnum sem heitir Maya og mælist 11brúttótonn. Lengd hans er 10.99 metrar.

Aðalvél bátsins er af gerðinni Scania D9 350hö tengd ZF286IV gír. Siglingatæki hans af gerðinni Furuno, Olex og Simrad.

Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.

Maya er útbúin til línu- og netaveiða og kemur veiðibúnaðurinn frá Noregi.

Lest bátsins rúmar 15 stk. 380 lítra fiskikör. Lífbátur og annar öryggisbúnaður kemur frá Viking.

Þá er stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni, Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar.  Salerni með sturtu.

Bátnurinn er kominn til Noregs og reiknað er með að hann hefji veiðar á næstu dögum.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s