Grímsnes kemur að landi í gær

89. Grímsnes GK 555 ex Grímsnes BA 555. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022.

Grímsnes GK 555 kemur hér að landi í Grindavík í gær en báturinn er gerður út af Maron ehf. til netaveiða.

Það var fínasta veður en þegar að norðanáttin lendir á móti krappri sunnan bárunni getur hann orðið ansi úfinn eins og sjá má á þessum flottu myndum sem Jón Steinar tók.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd