2376. Siggi Valli ÞH 44 ex Mávur SI 76. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. 24. júní árið 2005 fór ég í siglingu út á Skjálfanda þeirra erinda að mynda kajakræðarann Kjartan Jakob Hauksson fyrir Morgunblaðið. Farið var á Aþenu ÞH 505 og á útleiðinni mættum við tveim línubátum á landleið og smellti ég nokkrum myndum af … Halda áfram að lesa Siggi Valli og Kalli í Höfða
Year: 2018
Patricia III SZN 72
Patricia III SZNN 72 ex Bravó. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Patricia III SNZ 72 frá Szczecin í Póllandi kom til Húsavíkur í ágústmánuði árið 2004. Togarinn, sem var þá í eigu Íslendinga, sigldi undir pólsku flaggi og hafði verið að veiðum í Barentshafi og kom til löndunar á Húsavík. Skuttogari þessi hét upphaflega Ögri RE … Halda áfram að lesa Patricia III SZN 72
Senior N-60-B
Senior N-60-B ex Kvannøy. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Norska loðnuskipið Senior N-60-B er hér á mynd sem tekin var í febrúar sl. þegar floti norskra loðnuskipa var á Skjálfanda. Senior er 63 metra langur, 12 metra breiður og mælist 1693 GT að stærð. Smíðaður 1989 og með heimahöfn í Bodø. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Senior N-60-B
Sigurborg AK 375
1019. Sigurborg AK 375 ex Freyja RE 38. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1982. Sigurborg AK 375 kemur hér að bryggju á Vopnafirði á fallegum haustmorgni. Árið 1982 að ég held. Þarna var síld landað til söltunar en ekki virðist nú mikið vera í Sigurborginni. Sigurborg AK 375 var smíðuð í Noregi 1966 eins og kom fram … Halda áfram að lesa Sigurborg AK 375
Sjöfn EA 142
1028. Sjöfn EA 142 ex Sjöfn ÞH 142. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Sjöfn EA 142 kom og landaði á Húsavík 8. apríl árið 2003 og voru þessar myndir teknar þegar hún lét úr höfn eftir löndun. Hún var á þorskanetum. Sjöfn EA 142 var smíðuð í Boizenburg í A-Þýsklalandi árið 1967 og hét upphaflega og … Halda áfram að lesa Sjöfn EA 142
Nanna Ósk II ÞH 133
2793. Nanna Ósk II ÞH 133. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2010. Nanna Ósk II ÞH 133 kom ný til heimahafnar á Raufarhöfn þann 5. nóvember árið 2010 en þessar myndir voru teknar daginn eftir. Það var Útgerðarfélagið Stekkjavík ehf. á Raufarhöfn sem lét smíða bátinn, sem er af Cleopatra 38 gerð, hjá Trefjum í Hafnarfirði. Að … Halda áfram að lesa Nanna Ósk II ÞH 133
Sæfari AK 55
208. Sæfari AK 55 ex Kópur EA 33. Ljósmynd Hannes Baldvinsson Siglufirði. Sæfari AK var smíðaður fyrir Ríkissjóð Íslands í Svíþjóð árið 1947 og mældist 102 brl. að stærð. Upphaflega hét báturinn Haukur 1 ÓF 5 og var í eigu Hauks h/f á Ólafsfirði. Seldur 1957 Fiskvinnslunni h/f á Akureyri og fékk báturinn nafnið Kópur … Halda áfram að lesa Sæfari AK 55
Jólakveðja – Merry Christmas
Smábátar í Húsavíkurhöfn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Óska öllum þeim sem sækja síðuna heim gleðilegrar jólahátíðar með þökk fyrir innlitið á árinu sem er að líða. Merry Christmas to you all who visit this site with thanks for stopping by.
Helgi Helgason VE 343
94. Helgi Helgason VE 343. Ljósmynd Hannes Baldvinsson Siglufirði. Helgi Helgason VE 343 við bryggju á Siglufirði að landa síld. Helgi Helgason VE 343 var smíðaður í Vestmannaeyjum árið 1947 en talinn ónýtur og tekinn af skrá árið 1965. Upphaflega 500 hestafla June Munktell aðalvél en henni var skipt út fyrir 600 hestafla Gutaverken vél. … Halda áfram að lesa Helgi Helgason VE 343
Þorlákur helgi ÁR 11
200. Þorlákur helgi ÁR 11 ex Búðanes GK 101. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Það er ekki úr vegi að birta mynd af Þorláki helga ÁR 11 á Þorláksmessu. Myndin var tekin þegar Þorlákur helgi ÁR 11 var á rækjuveiðum úti fyrir Norðurlandi um árið en hann var smíðaður í Noregi 1960 fyrir bræðurnar Ársæl og Þorstein … Halda áfram að lesa Þorlákur helgi ÁR 11









