Vestmann GK 21

7022. Vestmann GK 21 ex Óskar SK 13. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Strandveiðibáturinn Vestmann GK 21 kemur hér að landi í Sandgerði í upphafi maímánaðar en Tonan ehf. gerir hann út. Upphaflega hét báturinn Kristín Finnbogadóttir BA 95 frá Patreksfirði og var smíðaður hjá Bátasmiðjunni Mótun hf. í Hafnarfirði árið 1988. Árið 2001 fékk báturinn … Halda áfram að lesa Vestmann GK 21

Kristín GK 18

7323. Kristín GK 18 ex Kristín NS 35. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Kristín GK 18 hét upphaflega Draupnir VE 550 og var smíðuð árið 1991 í Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði. Árið 1994 fékk báturinn nafnið Kristín HF 165 með heimahöfn í Hafnarfirði. Fimm árum síðar var hann kominn austur á Bakkafjörð og Kristín orðin NS … Halda áfram að lesa Kristín GK 18

Fram kom í dag

IMO 9370018. Fram. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðaskipavertíðin hófst síðdegis í dag þegar norska leiðangursskipið Fram kom til Húsavíkur. Fram, sem einnig var fyrst skipa á ferðinni hér á síðasta vor, er gert út af fyrirtækinu Hurtigruten og er með heimahöfn í Tromsö.  Skipið er nefnt eftir skipi norsku landkönnuðanna Roald Amundsen og Fridtjof Nansen.  … Halda áfram að lesa Fram kom í dag

Brufjell kom í morgun

IMO 9346665. Brufjell ex Damsterdijk. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Norska flutningaskipið Brufjell kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum þar sem skipað er upp hráefnisfarmi fyrir kísilver PCC á Bakka. Brufjell var smíðað í Goa á Indlandi árið 2007 og er 89,95 metra að lengd. Breidd þess er 14,4 metrar og það mælist … Halda áfram að lesa Brufjell kom í morgun