
Hér má sjá færeyska línuskipið Sandshavið SA 499 frá Sandi en myndina tók Vigfús Markússon.
Glöggir menn kannast kannski við skipið sem áður hét Kristrún RE 177 og gert út af Fiskkaupum hf. í Reykjavík.
Fiskkaup keypti skipið frá Kanada árið 2008 en þar hét það Appak og var í eigu Norðmanna.
Upphaflega hét Kristrún Staalbjørn, þá Stalbjørn og Eldfisk áður en það fékk Appaknafnið. Kristrún var smíðuð í Solstrand í Noregi 1988 en hefur verið lengd, mælist nú 47.7 metrar og 765 brúttótonn.
Kristrún RE 477 var seld til Færeyja árið 2022 en þá hafið Fiskkaup keypt nýrra og stærra skip sem fékk nafnið Kristrún RE 177.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution