
Á þessari mynd sem Vigfús Markússon tók gefur að líta Patrek BA 64 frá Patreksfirði sem upphaflega og lengst af hét Haukaberg SH 20 frá Grundarfirði.
Báturinn var smíðaður í skipasmíðastöð Þorgeirs & Ellerts á Akranesi.
Haukaberg var smíðað fyrir Hjálmar Gunnarsson útgerðarmann í Grundarfirði og kom það til heimahafnar í fyrsta skipti haustið 1974.
Þegar báturinn var seldur frá Grundarfirði árið 2015 hafði hann verið yfirbyggður, skutlengdur og komin á hann ný brú.
Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði (LVF) keypti hlutafélagið Hjálmar í Grundarfirði sumarið 2015, en félagið var eigandi Haukabergs ásamt veiðiheimildum.
Í nóvember það ár seldi LVF Haukabergið til Odda á Patreksfirði án veiðiheimilda sem fékk nafnið Patrekur BA 64.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution