Jawhart Al Wusta

IMO: 9256664. Jawhart Al Wusta ex Juvel.Ljósmynd Guðvarður Jónsson 2026. Guðvarður Jónsson sendi mér þessar myndir af Ómanska togararnum Jawhart Al Wusta í morgun en þar um borð er skipstjóri frændi minn Sigurgeir Pétursson. Togarinn, sem er um hundrað metrar að lengd, hét áður Juvel, smíðaður árið 2003 og var með heimahöfn í Álasundi í … Halda áfram að lesa Jawhart Al Wusta →

Kolbeinsey ÞH 10

1576. Kolbeinsey ÞH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Kolbeinsey ÞH 10 er hér að leggja upp í veiðiferð frá Húsavík um árið en hún var gerð út frá Húsavík árin 1981 til 1997. Kolbeinsey var smíðuð hjá Slippstöðinni á Akureyri og var henni gefið nafn og hún sjósett þann 7. febrúar 1981. Til heimahafnar kom Kolbeinsey 10. maí sama ár. … Halda áfram að lesa Kolbeinsey ÞH 10 →

Björg Jónsdóttir ÞH 321

263. Björg Jónsdóttir ÞH 321. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1985. Hér gefur að líta Björgu Jónsdóttur ÞH 321 nýkomna til heimhafnar á Húsavík í fyrsta sinn en það var í janúarmánuði árið 1985. Báturinn hét upphaflega Þorbjörn II GK 541 frá Grindavík og var smíðaður árið 1964 fyrir Hraðfrystihús Þórkötlustaða h/f í Grindavík. Smíðin fór fram … Halda áfram að lesa Björg Jónsdóttir ÞH 321 →

Matthías SH 21

2463. Matthías SH 21 ex Vestri BA 65, Ljósmynd Vigfús Markússon. Matthías SH 21 er einn Kínabátanna svokölluðu sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga og komu til landsins með flutningaskipi árið 2001. Matthías SH 21 hét upphaflega Vestri BA 63 og var í eigu samnefnds fyrirtækis á Patreksfirði. Í lok september árið 2005 var hann orðinn Vestri … Halda áfram að lesa Matthías SH 21 →

Hafborg EA 152

2323. Hafborg EA 152 ex Stapavík AK 132. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2010. Grímseyjarbáturinn Hafborg EA 152 siglir hér á Skjálfanda vorið 2010 og þarna var nýbúið að lengja bátinn ef rétt er munað. Upphaflega hét báturinn Stapavík AK 132 og var smíðaður hjá Skipasmíðastöðinni á Ísafirði árið 1998. Hér má lesa nánar um bátinn sem … Halda áfram að lesa Hafborg EA 152 →

Ársæll Sigurðsson HF 80

1097. Ársæll Sigurðsson HF 80 ex Guðrún Björg ÞH 355. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ársæll Sigurðsson HF 80 hét upphaflega Sæborg ÞH 55 og var smíðuð árið 1970 hjá Bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta á Akureyri. Sæborg fékk nafnið Guðrún Björg ÞH 355 árið 1977 þegar ný og stærri Sæborg leysti hana af hólmi. Guðrún Björg var … Halda áfram að lesa Ársæll Sigurðsson HF 80 →