2618. Björg Jónsdóttir ÞH 321 ex Birkeland. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Það voru margar myndir teknar á Skjálfanda þann 25 nóvember árið 2004 þegar ný Björg Jónsdóttir ÞH 321 kom til heimahafnar á Húsavík. Og hér birtist ein þeirra en við fórum á Geira litla til móts við Björgina til að taka myndir. Útgerðarfélagið Langanes … Halda áfram að lesa Björg Jónsdóttir ÞH 321
Rifsnes SH 44
2847. Rifsnes SH 44 ex Polarbris. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Rifsnes SH 44 landaði um 90 tonnum á Skagaströnd í gær og tók Jón Steinar þessar myndir af skipinu við komu þess þangað. Hraðfrystihús Hellisands keypti Rifsnesið til landsins árið 2013. Það hét áður Polarbris og var smíðað árið 1999 í Noregi. Nánar tiltekið … Halda áfram að lesa Rifsnes SH 44
Sólrún EA 151
2706. Sólrún EA 151 ex Tumi EA 84. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hér gefur að líta línubátinn Sólrúnu EA 151 á landleið fyrr í haust en það er GPG Seafood sem gerir bátinn út. Sólrún var smíðuð hjá Seiglu á Akureyri árið 2007 og hét upphaflega Sæunn Sæmunds ÁR 60 frá Þorlákshöfn. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Sólrún EA 151
Hemmi á Stað GK 80
2799. Hemmi á Stað GK 80 ex Daðey GK 777. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir af línubátnum Hemma á Stað GK 80 í gær þar sem báturinn var á útleið frá Skagaströnd. Það er Stakkavík ehf. sem gerir bátinn út en hann hét áður Daðey GK 777. Reyndar Hemmi á … Halda áfram að lesa Hemmi á Stað GK 80
Hlífar Pétur NK 15
923. Hlífar Pétur NK 15 ex Skálaberg ÞH 244. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hlífar Pétur NK 15 lætur hér úr höfn í Vestmannaeyjum um árið en myndina tók Tryggvi Sigurðsson. Saltfang hf. á Neskaupstað keypti bátinn frá Húsavík árið 1990 og átti hann í um þrjú ár. Báturinn var smíðaður árið 1957 í Danmörku fyrir Sigvalda … Halda áfram að lesa Hlífar Pétur NK 15
Hulda Björnsdóttir GK 11
3027. Hulda Björnsdóttir GK 11. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir í gær þegar ísfisktogararinn Hulda Björnsdóttir GK 11 kom til Grindavíkur í SSA 10-12 metravindi og rigningarsudda. Aflinn var um 145 tonn sem fékkst fyrir austan land. Hulda Björnsdóttir GK 11 var smíðuð árið 2024 hjá skipasmíðastöðinni Astilleros Armon í … Halda áfram að lesa Hulda Björnsdóttir GK 11
Eivind VA-132
IMO 8619522. Eivind VA-132 ex Vestliner. Ljósmynd Vigfús Markússon. Nú birtist mynd af Færeyska línuskipinu Eivind VA-132 frá Sandavagi sem Vigfús Markússon tók um árið. Eivind hét upphaflega Vestliner og var smíðaður í Noregi árið 1987, bar síðar nöfnin Atlantic Explorer, Lord Auckland, aftur Vestliner og Nordkappjenta. Skipið var selt til Færeyja árið 2010 og … Halda áfram að lesa Eivind VA-132
Jökull SK 16 sökk öðru sinni í Hafnarfjarðarhöfn
288. Jökull SK 16 sokkinn í Hafnarfjarðarhöfn. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Eikarbáturinn Jökull SK 16 sökk í Hafnarfjarðarhöfn um helgina og það ekki í fyrsta skipti. Báturinn hefur legið um allanga hríð við bryggju í Hafnarfirði og sökk þar í fyrra skiptið árið 2020. Líkt og þá lá Þorsteinn ÞH 115 utan á Jökli … Halda áfram að lesa Jökull SK 16 sökk öðru sinni í Hafnarfjarðarhöfn
Breiðafjarðarferjan Baldur
3039. Baldur ex Røst. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Tryggvi Sigurðsson tók þessa mynd á dögunum af Breiðarfjarðaferjunni Baldri koma til hafnar í Vestmannaeyjum en Baldur hefur undanfarnar vikur leyst Herjólf af meðan hann er í slipp. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images … Halda áfram að lesa Breiðafjarðarferjan Baldur
Herja ST 166
2766. Herja ST 166 ex Otur III ÍS 33. Ljósmynd Vigfús Markússon 2025. Otur III ÍS 33 hefur fengið nafnið Herja ST 166 með heimahöfn á Hólmavík. Upphaflega hét báturinn Benni SF 66 og var smíðaður í Trefjum árið 2007. Síðar fékk hann nafnið Steinunn HF 108 en árið 2021 fékk hann nafnið Otur III ÍS 33. Með því … Halda áfram að lesa Herja ST 166









