Árni Sigurður AK 370

1413. Árni Sigurður AK 370. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Árni Sigurður AK 370 var smíðaður árið 1975 hjá Baatservice Verft A/S í Mandal í Noregi og var eitt fjögurra skipa í raðsmíði stöðvarinnar fyrir íslenska aðila. Hin voru Gullberg VE 292, Huginn VE 55 og Skarðsvík SH 205. Í Morgunblaðinu 26. febrúar 1975 sagði svo … Halda áfram að lesa Árni Sigurður AK 370 →

Rifsnes SH 44

1136. Rifsnes SH 44 ex Örvar BA 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Línuskipið Rifsnes SH 44 er hér rétt ókomið til hafnar á Húsavík haustið 2006. Rifsnesið, sem heitir Fjölnir GK 157 í dag, var smíðað í Mandal í Noregi 1968 en keypt til Skagastrandar árið 1970. Þá hét það Skrolsvik T-84-TN en Skagstrendingar nefndu hann Örvar HU 14. … Halda áfram að lesa Rifsnes SH 44 →

Sæunn Sæmunds ÁR 60

2706. Sæunn Sæmunds ÁR 60. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Sæunn Sæmunds ÁR 60 kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn sumarið 2009 en hún var smíðuð hjá Seiglu á Akureyri árið 2007. Seld norður í Eyjafjörð haustið 2017 og heitir í dag Sólrún EA 151 með heimahöfn á Árskógssandi. Með því að smella á myndina er hægt … Halda áfram að lesa Sæunn Sæmunds ÁR 60 →

Reykjaborg RE 25

1468. Reykjaborg RE 25 ex Rögnvaldur SI 77. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Reykjaborg RE 25 liggur hér við bryggju í Keflavík eitt haustið og hinum megin við bryggjuna er Guðbjörg GK 517. Báðir Vararbátar sem smíðaðir voru fyrir Grenvíkinga.  Reykjaborg hét upphaflega Sigrún ÞH 169 og var í eigu Sævars h/f á Grenivík. Báturinn var smíðaður … Halda áfram að lesa Reykjaborg RE 25 →

Þórður ÞH 92

5476. Þórður ÞH 92. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér leggur Viðar Þórðarson upp í róður á Þórði ÞH 92 um árið, ca. 1985 plús mínus. Jóhann Sigvaldason bátasmiður á Húsavík smíðaði Þórð ÞH 92 fyrir Viðar árið 1961. Báturinn var 3,51 brl. að stærð, smíðaður úr furu og eik. Búinn 33 heestafla Volvo Penta. Hér má … Halda áfram að lesa Þórður ÞH 92 →

Bátalónsbátar á Norðfirði

1791. Hafdís NK 50 - 1862. Inga NK 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Þegar minnst er á Bátalónsbáta koma yfirleitt fyrst upp í hugann 11 tonna trébátarnir en hér liggja tveir Bátalónsstálbátar við bryggju á Norðfirði. Þetta var sumarið 2004 en sá blái hét upphaflega Máni ÍS 54 frá Þingeyri og þegar þarna var komið … Halda áfram að lesa Bátalónsbátar á Norðfirði →