Þórður Jónasson í Krossanesi

264. Þórður Jónasson EA 350 ex Þórður Jónasson RE 350. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Loðnuskipið Þórður Jónasson EA 350 sést hér við bryggju í Krossanesi þar sem verið var að landa úr því. Þórður Jónasson, sem smíðaður var í Noregi og kom til Akureyrar í júníbyrjun árið 1964, var upphaflega RE 350. Hann var smíðaður fyrir … Halda áfram að lesa Þórður Jónasson í Krossanesi →

Huginn í Krossanesi

1411. Huginn VE 55. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Huginn VE 55 liggur hér við bryggju í Krossanesi við Akureyri á síðustu öld en hann kom nýr til heimahafnar í Vestmannaeyjum 30. janúar árið 1975. Huginn var smíðaður hjá Baatservice Verft A/S, í Mandal í Noregi, smíðanúmer 617, og var nr. tvö í raðsmíði fjögurra skipa hjá stöðinni fyrir íslenska útgerðaraðila. Eigandi skipsins var Huginn h.f í … Halda áfram að lesa Huginn í Krossanesi →

Gunnar Hámundarson GK 357

500. Gunnar Hámundarson GK 357. Ljósmynd Hafþor Hreiðarsson. Gunnar Hámundarson GK 357 kemur hér að landi í Keflavík um árið en hann var með heimahöfn í Garði. Báturinn var smíðaður árið 1954 í Ytri Njarðvík. Hann var með smíðanúmer 1 hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur og er 53 brl. að stærð Gunnar Hámundarson GK 500 var seldur … Halda áfram að lesa Gunnar Hámundarson GK 357 →

Júpíter ÞH 363

2463. Júpíter ÞH 363 ex Jupiter II FD 235. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Júpíter ÞH 363 var keyptur frá Færeyjum haustið 2004 og kom til heimahafnar á Þórshöfn í október það ár. Í Verinu, sjávarútvegsblaði Morgunblaðsins sagði: NÝTT skip bættist í flota Þórshafnar þegar Júpíter ÞH-363 sigldi í heimahöfn. Fjölmenni var á hafnarbakkanum til að … Halda áfram að lesa Júpíter ÞH 363 →

Gleðilegt nýtt ár – Happy new year

Húsavík 2003. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skipamyndir.com óskar öllum þeim sem sækja síðuna heim gleðilegs nýs árs með þökk fyrir innlitið á því gamla sem nú er liðið í aldanna skaut. Með því að smella á myndina, sem er ríflega tuttugu ára gömul, er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images … Halda áfram að lesa Gleðilegt nýtt ár – Happy new year →