Júpíter ÞH 363

2463. Júpíter ÞH 363 ex Jupiter II FD 235. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005.

Júpíter ÞH 363 var keyptur frá Færeyjum haustið 2004 og kom til heimahafnar á Þórshöfn í október það ár.

Í Verinu, sjávarútvegsblaði Morgunblaðsins sagði:

NÝTT skip bættist í flota Þórshafnar þegar Júpíter ÞH-363 sigldi í heimahöfn. Fjölmenni var á hafnarbakkanum til að fagna komu hans en að móttökuathöfn lokinni var öllum boðið um borð að þiggja veitingar og skoða nýja skipið.

Júpíter var smíðaður 1978 í Noregi og er nóta- og togveiðiskip. Hann var keyptur af P/F Driftin í Færeyjum og ber 1.560 tonn. Hann er 68,65 metra langur og 10,80 metra breiður og með góðum kælibúnaði; 9RSW kælitanka og aðal- vélin er MAK 3000BHP.

Við afhendingu í Færeyjum var farinn prufutúr með skip og veiðarfæri og í Fuglafirði voru tekin nokkur flottroll og síldarnót sem fylgdu með í kaupunum.

Heimsigling gekk vel og segir Jón Axelsson skipstjóri nýja Júpíter gott sjóskip. Það er von manna að nýi Júpíter verði jafn happasælt skip og gamli Júpíter, sem hefur reynst byggðarlaginu vel í gegnum tíðina og vonast menn til að veðurblíðan við heimkomu Júpíters sé táknræn fyrir gott gengi útgerðarinnar í framtíðinni.

Þannig var það og nánar verður sagt frá skipinu síðar en áður en það kom til Færeyja hét það Herøytrål.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd