1357. Níels Jónsson EA 106 ex Arnarnes ÍS 133. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Níels Jónsson EA 106 frá Hauganesi kemur hér að landi á Húsavík vorið 2004 en hann var þá á netum Báturinn hét upphaflega Arnarnes ÍS 133 og var smíðaður hjá Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri fyrir samnefnt fyrirtæki á Ísafirði. Hann var … Halda áfram að lesa Níels Jónsson EA 106
Glaður SH 226
3046. Glaður SH 226. Ljósmynd Magnús Jónsson 2023. Maggi Jóns myndaði þessa nýsmíði frá Trefjum í Hafnarfjarðarhöfn í dag. Glaður SH 226 heitir báturinn sem er af gerðinni Cleopatra 33. Heimahöfn Snæfellsbær. Meira síðar. Glaður SH 226. Ljósmyndir Maggi Jóns 2023. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. … Halda áfram að lesa Glaður SH 226
Helga Sigmars NS 6
1848. Helga Sigmars NS 6. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1989. Helga Sigmars NS 6 var smíðuð í Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1987. Hún var gerð út fá Seyðisfirði til ársins 1999 er hún var seld til Grímsyejar og fékk nafnið Sæbjörg EA 184. Báturinn var lengdur árið 1997 og mældist eftir það 15 brl. að stærð. Frá … Halda áfram að lesa Helga Sigmars NS 6
Þorleifur EA 88
1921. Þorleifur EA 88 ex Guðrún Jónsdóttir SI 155. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þorleifur EA 88, sá þriðji í röðinni ef ég man rétt, kemur hér að landi á Húsavík eftir dragnótaróður á Skjálfandaflóa. Báturinn hét Völusteinn NS 116 eins og lesa má í færslunni hér á undan og var smíðaður í Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1988. … Halda áfram að lesa Þorleifur EA 88
Völusteinn NS 116
1921. Völusteinn NS 116. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1989. Völusteinn NS 116 sem var 9,9 brl. að stærð, var smíðaður í Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1988 og var þessi mynd tekin ári síðar. Árið 1993 var Völusteinn seldur til Siglufjarðar þar sem hann fékk nafnið Guðrún Jónsdóttir SI 155. Ekki stoppaði hann lengi á Siglufirði því ári … Halda áfram að lesa Völusteinn NS 116
Magnús EA 25
1922. Magnús EA 22 ex Sigmar NS 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Magnús EA 22 úr Grímsey kemur hér til hafnar á Húsavík um árið en hann hafði verið á dragnótaveiðum á Skjálfanda. Magnús hét áður Sigmar NS 5 og var smíðaður í Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1989. Árið 1990 fékk hann nafnið Magnús EA 25 með … Halda áfram að lesa Magnús EA 25
Fífill GK 54
1048. Fífill GK 54. Ljósmynd Hafþór hreiðarsson. Fífill GK 54 var smíðaður árið 1967 í Noregi fyrir Einar Þorgilsson & co hf. í Hafnarfirði. Nánar tiltekið hjá Kaarbös Mekaniske Verksted í Harstad. Fífill GK 54 var 347 brl. að stærð búinn 900 hestafla Wichmann aðalvél. Árið 1974 var skipið lengt og yfirbygg og mældist þá 331 … Halda áfram að lesa Fífill GK 54
Þuríður Halldórsdóttir GK 94
1645. Þuríður Halldórsdóttir GK 94 ex Hafnarey SU 110. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Skuttogarinn Þuríður Halldórsdóttir GK 94 heldur hér í veiðiferð frá Grindavík vorið 2006. Upphaflega hét skipið Hafnarey SU 110 frá Breiðdalsvík og var eitt af raðsmíðaskipunum svokölluðu. Smíðað 1983 hjá Þorgeir & Ellert á Akranesi. Valdimar hf. í Vogum á Vatnsleysuströnd keypti … Halda áfram að lesa Þuríður Halldórsdóttir GK 94
Við bryggju í Þorlákshöfn
Bátar við bryggju í Þorlákshöfn sumarið 2004. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér liggja við bryggju í Þorlákshöfn fjórir bátar sem allir eru farnir í pottinn. Myndin var tekin sumarið 2004 og á henni eru Klængur ÁR 20, Jón á Hofi Ár 62, Jóhanna ÁR 206, Fróði ÁR 33 og Arnar ÁR 55. Allir smíðaðir í Noregi … Halda áfram að lesa Við bryggju í Þorlákshöfn
Ljósin prýða
Við Húsavíkurhöfn í kvöld. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þá eru jólaseríur komnar upp á nokkrum hvalaskoðunarbátum á Húsavík en ekki veitir af að lífga aðeins upp á skammdegið. Og til að bæta um betur voru norðurljós á himni í kvöld en í forgrunni myndar er Norðursiglingarbáturinn Náttfari og fjær Sylvía sem Gentle Giants gerir út. Með … Halda áfram að lesa Ljósin prýða









