2433. Steini GK 45 ex Bensi Egils ST 13. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Steini GK 45 kemur hér að landi í Sandgerði vorið 2008 en báturinn hét upphaflega Bensi Egils ST 13 frá Hólmavík. Báturinn var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 2006 en fékk Steinanafnið sex árum síðar. Heimahöfn Sandgerði í byrjun en síðar … Halda áfram að lesa Steini GK 45
Geir KE 1
1321. Geir KE 1 ex Bjarmi BA 326. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Geir KE 1 kemur hér að landi í Grindavík vorið 2009 en hann stundaði dragnótaveiðar. Báturinn var smíðaður í Vestnes í Noregi árið 1969 og hér Bye Senior þegar hann var keyptur til landsins árið 1973. Þá fékk hann nafnið Reynir GK 177 … Halda áfram að lesa Geir KE 1
Árni Sigurður AK 370
1413. Árni Sigurður AK 370. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Árni Sigurður AK 370 var smíðaður árið 1975 hjá Baatservice Verft A/S í Mandal í Noregi og var eitt fjögurra skipa í raðsmíði stöðvarinnar fyrir íslenska aðila. Hin voru Gullberg VE 292, Huginn VE 55 og Skarðsvík SH 205. Í Morgunblaðinu 26. febrúar 1975 sagði svo … Halda áfram að lesa Árni Sigurður AK 370
Donna
1175. Donna ST 4 ex Donna HU 4. Ljósmynd hafþór Hreiðarsson. Rækjubáturinn Donna lætur hér úr höfn á Húsavík sumarið 1993 að mig minnir. Og ef það er rétt munað hjá mér þá held ég að hún hafi verið HU 4. Sama ár verður Hún Donna ÍS 62. Upphaflega hét báturinn Hafsúlan RE 77 og … Halda áfram að lesa Donna
Háberg GK 299
1006. Háberg GK 299 ex Hrafn GK 12. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Loðnuskipið Háberg GK 299 kemur hér drekkhlaðið að landi í Grindavík um árið. Upphaflega Héðinn ÞH 57 sem var smíðaður í Noregi og kom nýr til Húsavíkur í júní árið 1966. Héðinn ÞH 57 var seldur Þorbirninum hf. í Grindavík vorið 1975 og fékk … Halda áfram að lesa Háberg GK 299
Rifsnes SH 44
1136. Rifsnes SH 44 ex Örvar BA 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Línuskipið Rifsnes SH 44 er hér rétt ókomið til hafnar á Húsavík haustið 2006. Rifsnesið, sem heitir Fjölnir GK 157 í dag, var smíðað í Mandal í Noregi 1968 en keypt til Skagastrandar árið 1970. Þá hét það Skrolsvik T-84-TN en Skagstrendingar nefndu hann Örvar HU 14. … Halda áfram að lesa Rifsnes SH 44
Sæunn Sæmunds ÁR 60
2706. Sæunn Sæmunds ÁR 60. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Sæunn Sæmunds ÁR 60 kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn sumarið 2009 en hún var smíðuð hjá Seiglu á Akureyri árið 2007. Seld norður í Eyjafjörð haustið 2017 og heitir í dag Sólrún EA 151 með heimahöfn á Árskógssandi. Með því að smella á myndina er hægt … Halda áfram að lesa Sæunn Sæmunds ÁR 60
Reykjaborg RE 25
1468. Reykjaborg RE 25 ex Rögnvaldur SI 77. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Reykjaborg RE 25 liggur hér við bryggju í Keflavík eitt haustið og hinum megin við bryggjuna er Guðbjörg GK 517. Báðir Vararbátar sem smíðaðir voru fyrir Grenvíkinga. Reykjaborg hét upphaflega Sigrún ÞH 169 og var í eigu Sævars h/f á Grenivík. Báturinn var smíðaður … Halda áfram að lesa Reykjaborg RE 25
Þórður ÞH 92
5476. Þórður ÞH 92. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér leggur Viðar Þórðarson upp í róður á Þórði ÞH 92 um árið, ca. 1985 plús mínus. Jóhann Sigvaldason bátasmiður á Húsavík smíðaði Þórð ÞH 92 fyrir Viðar árið 1961. Báturinn var 3,51 brl. að stærð, smíðaður úr furu og eik. Búinn 33 heestafla Volvo Penta. Hér má … Halda áfram að lesa Þórður ÞH 92
Bátalónsbátar á Norðfirði
1791. Hafdís NK 50 - 1862. Inga NK 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Þegar minnst er á Bátalónsbáta koma yfirleitt fyrst upp í hugann 11 tonna trébátarnir en hér liggja tveir Bátalónsstálbátar við bryggju á Norðfirði. Þetta var sumarið 2004 en sá blái hét upphaflega Máni ÍS 54 frá Þingeyri og þegar þarna var komið … Halda áfram að lesa Bátalónsbátar á Norðfirði









