Síldarbátar við bryggju á Eskifirði

Síldarbátar við bryggju á Eskifirði. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1984. Hér gefur að líta nokkra síldarbáta við bryggju á Eskifirði haustið 1984. Sæberg SU 9, sem er þarna stærst báta, gæti þó hafa verið á haustloðnu. Hinir eru fv. heimabáturinn Votaberg SU 14, Hringur GK 18 frá Hafnarfirði og saman liggja þrír Þorlákshafnarbátar. Innstur er Ísleifur … Halda áfram að lesa Síldarbátar við bryggju á Eskifirði

Dongeborg við Bökugarðinn

IMO:9163697. Dongeborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Hollenska flutningaskipið Dongeborg kom til Húsavíkur í gærkveldi eftir siglingu frá El Ferrol á norður Spáni. Farmur skipsins er trjábolir, tæplega 7000 tonn en það mun vera stærsti timburfarmur sem komið hefur til PCC á Bakka. Dongeborg, sem er 6,205 GT að stærð, var smíðað í Hollandi árið 1999. … Halda áfram að lesa Dongeborg við Bökugarðinn

Stokksey ÁR 40

1037. Stokksey GK 40 ex Dagfari GK 70. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Stokksey ÁR 40 Hét upphaflega Dagfari ÞH 70 smíðaður fyrir Barðann hf. á Húsavík í Boizenburg í Austur-Þýskalandi.  Hann kom til heimahafnar á Húsavík 17, maí árið 1967. Árið 1977 er skráður eigandi Útgerðarfélagið Njörður hf. en Dagfari var lengst af ÞH 70 eða til … Halda áfram að lesa Stokksey ÁR 40

Kristinn Friðriksson SH 3

1846. Kristinn Friðriksson SH 3 ex Halldór Jónsson SH 217. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Rækjubáturinn Kristinn Friðriksson SH 3 frá Stykkishólmi er hér við bryggju á Húsavík vorið 2003. Báturinn, sem var 104 brl. að stærð, var gerður út af Sigurði Ágústssyni ehf. árin 1994-2004 en þá var hann seldur til Írlands. Uphaflega hét báturinn … Halda áfram að lesa Kristinn Friðriksson SH 3

FISK Seafood leigir dragnótabát

2323. Hafborg EA 242 ex Hafborg EA 152. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Héraðsfréttablaðið Feykir greinir frá því að FIS Seafood á Sauðárkróki hafi tekið dragnótabát á leigu í eitt ár. Um er að ræða Hafborgu EA 242 sem legið hefur við bryggju frá því ný Hafborg kom í flotann í árslok 2018. Báturinn var smíðaður … Halda áfram að lesa FISK Seafood leigir dragnótabát