3030. Vestri BA 63 ex Tobis. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Rækjutogarinn Vestri BA 63 frá Patreksfirði var á Húsavík þar sem trollið var sett upp á bryggju til viðgerðar. Útgerðarfyrirtækið Vestri ehf. á Patreksfirði keypti togarann frá Noregi og kom hann í fyrsta skipti til heimahafnar þann 9. apríl árið 2022. Í Noregi hét togarinn Tobis en … Halda áfram að lesa Vestri á Húsavík
Flokkur: Togarar
Geiri Péturs ÞH 344
2285. Geiri Péturs ÞH 344 ex Sverri Olason TG 730. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Rækjutogarinn Geiri Péturs ÞH 344 kemur hér að landi á Húsavík í febrúarmánuði árið 2003. Togarinn, sem áður hét Sverri Olason, var keyptur frá Færeyjum í desember árið 1996 en kom til heimahafnar á Húsavík í janúar 1997. Hér má lesa nánar … Halda áfram að lesa Geiri Péturs ÞH 344
Björgúlfur EA 312
Björgúlfur EA 312. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2014. Skuttogarinn Björgúlfur EA 312 er hér að koma til hafnar á Dalvík þann 3. apríl árið 2014. Upphaflega og lengst af hét togarinn Björgúlfur EA 312 frá Dalvík en vorið 2017 fékk hann nafnið Hjalteyrin EA 306. Þá hafði nýr Björgúlfur EA 312 leysti hann af hólmi. Hjalteyrin fór í brotajárn í Belgíu … Halda áfram að lesa Björgúlfur EA 312
Bergey VE 44
2964. Bergey VE 44 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Bergey VE 44 kom að landi í Grindavík í gær og tók Jón Steinar þessar myndir endar veður til myndatöku gott. Bergey var með fullfermi eða um 75 tonn. Uppstaða aflans er þorskur um 36 tonn og ufsi 34 tonn en aðrar … Halda áfram að lesa Bergey VE 44
Hulda Björnsdóttir GK 11
3027. Hulda Björnsdóttir GK 11. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Hulda Björnsdóttir GK 11 leggur hér upp í veiðiferð frá Grindavík sl. þriðjudag eftir að hafa landað um 112 tonn tonna afla sínum fyrr um daginn. Til fróðleiks má geta þess að togarinn landaði rétt rúmum 5000 tonnum í Grindavíkurhöfn á síðastliðnu ári. Hulda Björnsdóttir … Halda áfram að lesa Hulda Björnsdóttir GK 11
Helga II RE 373
1348. Helga II RE 373 ex Skúmur RE 373. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Helga II RE 373 var einn af minni Spánartogurunum og hét upphaflega Aðalvík KE 95. Togarinn bar ekki lengi nafnið Helga II RE 373 en hér má lesa nánar um skipið. Aðalvík fékk síðar nöfnin Drangey SK 1, Eyvindur Vopni NS 70, Óseyri … Halda áfram að lesa Helga II RE 373
Gullberg VE 292
2747. Gullberg VE 292 ex Riba 1. Ljósmynd Vigfús Markússon. Gullberg VE 292 er hér á toginu um árið og komið í liti Vinnslustöðvarinnar. Ufsaberg ehf. keypt Gullbergið í Ástralíu árið 2006 en til Vestmannaeyja kom skipið vorið 2007 frá Danmörku þar sem unnið var að gagngerum endurbótum og breytingum á því. Áður bar Gullbergið … Halda áfram að lesa Gullberg VE 292
Harðbakur EA 303
1412. Harðbakur EA 303. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Harðbakur EA 303 kemur hér upp að slippkantinum á Akureyri um árið og kallarnir klárir með endana. Togarinn var smíðaður í San Juan skammt frá San Sebastian á Norður-Spáni fyrir Útgerðarfélag Akureringa h/f. Harðbakur, sem var síðastur Spánartogaranna sex af stærri gerðinni, kom til heimahafnar á Akureyri þann … Halda áfram að lesa Harðbakur EA 303
Sólberg ÓF 1
2917. Sólberg ÓF 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Frystitogarinn Sólberg ÓF 1 kom til olíutöku í Krossanesi á dögunum en það gerir hann jafnan í lok veiðiferðar. Sólberg ÓF 1 kom nýr til landsins í maí mánuði árið 2017 en hann var smíðaður fyrir Ramma hf. í Tersanskipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Sólberg ÓF 1 er 79,85 metrar … Halda áfram að lesa Sólberg ÓF 1
Snæfell EA 310
2212. Snæfell EA 310 ex Akraberg FD 10. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessa mynd af Samherjatogaranum Snæfelli EA 310 þar sem það liggur ljósum prýtt í Hafnarfjarðarhöfn. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in … Halda áfram að lesa Snæfell EA 310









