Gísli Árni í Krossanesi

1002. Gísli Árni RE 375. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Gísli Árni RE 375 var annálað aflaskip á sínum tíma og hér er hann við bryggju í Krossanesi og bíður löndunar eða þá það er verið að landa úr honum. Gísli Árni var smíðaður fyrir Sjóla hf. í Reykjavík hjá Kaarbös Mek. Verksted í Harstad í Noregi … Halda áfram að lesa Gísli Árni í Krossanesi →

Jóna Eðvalds SF 20

2233. Jóna Eðvalds SF 20 ex Vigilant. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1999. Jóna Eðvalds SF 20 sem hér sést í slipp á Akureyri var smíðuð árið 1980 í SIMEK skipasmíðastöðinni í Flekkefjørd Noregi. Skipið hét Vigilant og var smíðað fyrir skoska útgerð en Skinney-Þinganes keypti það til Íslands árið 1995 og nefndi Jónu Eðvalds. Jóna Eðvalds … Halda áfram að lesa Jóna Eðvalds SF 20 →

Björg Jónsdóttir ÞH 321

1508. Björg Jónsdóttir ÞH 321 ex Höfðavík AK 200. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1996. Þessa mynd tók Hreiðar Olgeirsson í apríl 1996 þegar ný Björg Jónsdóttir ÞH 321 kom til heimahafnar á Húsavík í fyrsta skipti. Hér má lesa nánar um komu skipsins til Húsavíkur en Langanes ehf. keypti það frá Akranesi þar sem það bar … Halda áfram að lesa Björg Jónsdóttir ÞH 321 →

Guðmundur VE 29

1272. Guðmundur VE 29 ex Guðmundur RE 29. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Nótaskipið Guðmundur VE 29 kemur hér að landi í Krossanesi um árið en hann var upphaflega RE 29 á íslenskri skipaskrá. Guðmundur var smíðaður árið 1968 hjá  Karmsund Verft & og Mek AS á Karmøy í Noregi fyrir Br. Giertsen & Co. A/S, Bergen. Hét upphaflega Senior B-33-B … Halda áfram að lesa Guðmundur VE 29 →

Háberg GK 299

2644. Háberg GK 299 ex Antartic. Ljósmynd Börkur Kjartansson 2005. Háberg GK 299 er hér á siglingu í febrúarmánuði árið 2005 en Samherji keypti skipið til landsins haustið áður. Hábergið, sem smíðað var 1979 og hét upphaflega Eldjárn, kom til Grindavíkur 1. desember 2004 eftir breytingar í Póllandi. Eldjárn var seldur til Írlands árið 1991 … Halda áfram að lesa Háberg GK 299 →

Börkur NK 122

2827. Börkur NK 122 ex Torbas Ljósmynd Börkur Kjartansson 2013. Börkur NK 122 sem hér um ræðir hét upphaflega Libas og var skipið smíðað í Nor­egi árið 2000. Það bar síðan nöfnin Staaløy og Torbas áður en Síldarvinnslan keypti það til Íslands árið 2012 og gaf því nafnið Börkur NK 122. Árið 2014 hafði Síldarvinnslan … Halda áfram að lesa Börkur NK 122 →