2812. Heimaey VE 1. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Ísfélag hf. hefur selt Heimaey VE 1 til norska félagsins Andrea L AS. og í kvöld kll 20:00 lét hún síðasta sinn úr heimahöfn í Eyjum. Áfangastaðurinn er Maloy en þar verður skipið afhent norskum kaupendum í næstu viku. Tryggvi Sigurðsson tók meðfylgjandi mynd í kvöld. Í … Halda áfram að lesa Heimaey VE 1 seld til Noregs
Flokkur: Nóta- og togskip
Víkurberg GK 1
979. Víkurberg GK 1 ex Stapavík SI 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Loðnuskipið Víkurberg Gk 1 kemur hér að bryggju í Njarðvík um árið en það voru Benóný Þórhalsson og Reynir Jóhannsson sem gerðu skipið út. Þeir keyptu skipið frá Siglufirði árið 1980 en þar bar það nafnið Stapavík SI 4 og hafði verið í eigu … Halda áfram að lesa Víkurberg GK 1
Víkingur AK 100
2882. Víkingur AK 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Nóta- og togskipið Víkingur AK 100 liggur hér við bryggju í Reykjavík um páskana og veðurblíða algjör. Það er Brim hf. sem gerir Víking út en hann var smíðaður í skipasmíðastöðinni Celiktrans Deniz Insaat Ltd í Tyrklandi og kom til landsins í lok árs 2015. Með því … Halda áfram að lesa Víkingur AK 100
Júpíter VE 161 í slipp
2618. Júpíter VE 161 ex Jóna Eðvalds SF 200. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Júpíter VE 161 sem hér sést í slipp í Reykjavík hét áður Jóna Eðvalds SF 200 og er í eigu Horneyjar ehf., félags sem er í sameiginlegri eigu Skinneyjar-Þinganess og Ísfélagsins. Júpíter var smíðaður í Noregi árið 1975 og bar nafnið Birkeland … Halda áfram að lesa Júpíter VE 161 í slipp
Margrét og Vilhelm Þorsteinsson
3038. Margrét EA 710 ex Christina S FR 224. - 2982. Vilhelm Þorsteinsson EA 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Samherjaskipin Margrét EA 710 og Vilhelm Þorsteinsson EA 11 liggja hér við Oddeyrarbryggju en myndina tók ég um helgina. Margrét EA 710 er 2,411 BT að stærð, lengd skipsin er 72 metrar og breiddin 15 metrar … Halda áfram að lesa Margrét og Vilhelm Þorsteinsson
Kap VE 4
1062. Kap VE 4 ex Kap II VE 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Einhverju sinni kom Kap VE 4 til Húsavíkur og lá þar við bryggju um stund og þá var þessi mynd tekin. Kap hét upphaflega Óskar Magnússon AK 177 var smíðaður í Stálvík árið 1967 fyrir Þórð Óskarsson hf. á Akranesi. Hér má lesa … Halda áfram að lesa Kap VE 4
Dagfari kastar nótinni
1037. Dagfari ÞH 70. Ljósmynd Skarphéðinn Ívarsson. Dagfari ÞH 70 kastar hér loðnunótinni um árið en það var Njörður hf. sem gerði hann út. Dagfari var smíðaður fyrir Barðann hf. á Húsavík í Boizenburg í Austur-Þýskalandi. Hann kom til heimahafnar á Húsavík 17, maí árið 1967. Árið 1977 er skráður eigandi Útgerðarfélagið Njörður hf. en … Halda áfram að lesa Dagfari kastar nótinni
Aðalsteinn Jónsson SU 11 kom til Húsavíkur í dag
2929. Aðalsteinn Jónsson SU 11 ex Libas. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Aðalsteinn Jónsson SU 11 kom til Húsavíkur í dag en stoppaði stutt, eiginlega örstutt en erindið var að setja menn frá Hafró í land. Skipið, sem hefur verið við loðnuleit síðustu daga ásamt Polar Ammassak, lagðist að Bökugarðinum og er þetta stærsta fiskiskip sem … Halda áfram að lesa Aðalsteinn Jónsson SU 11 kom til Húsavíkur í dag
Áskell EA 48
1807. Áskell EA 48 ex Hákon ÞH 250. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Áskell EA 48 kemur hér til hafnar í Reykjavík um árið og ansi líklegur til að fara í slipp. hét upphaflega Hákon ÞH 250 og var smíðuð fyrir Gjögur h/f í Ulsteinsvik, Noregi árið 1987. Skipið er 820 brúttórúmlestir, 57 metrar að lengd og … Halda áfram að lesa Áskell EA 48
Hólmaborg SU 11
1525. Hólmaborg SU 11 ex Eldborg HF 13. LJósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hólmaborg SU 11 kom eitt sinn til Húsavíkur þegar skipið stundaði úthafsrækjuveiðar og þá var þessi mynd tekin. Upphaflega Eldborg HF 13 sem var smíðuð árið 1978 en tíu árum síðar var skipið selt til Eskifjarðar þar sem það fékk nafnið Hólmaborg SU 11. … Halda áfram að lesa Hólmaborg SU 11









