Björg Jónsdóttir ÞH 321

2618. Björg Jónsdóttir ÞH 321 ex Birkeland. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Það voru margar myndir teknar á Skjálfanda þann 25 nóvember árið 2004 þegar ný Björg Jónsdóttir ÞH 321 kom til heimahafnar á Húsavík. Og hér birtist ein þeirra en við fórum á Geira litla til móts við Björgina til að taka myndir. Útgerðarfélagið Langanes … Halda áfram að lesa Björg Jónsdóttir ÞH 321

Hákon á Höfn

3059. Hákon ÞH 250. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2025. Hér gefur að líta Hákon ÞH 250 við bryggju á Hornafirði en hann landar þar síld að ég held. Myndirnar tók Sigurður Davíðsson skipverji á Steinunni SF 10 sem landaði á Hornafirði í gær. 3059. Hákon ÞH 250. Ljósmyndir Sigurður Davíðsson 2025. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Hákon á Höfn

Heimaey VE 1

3060. Heimaey VE 1 ex Pathway PD 165. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Heimaey VE 1 kom til hafnar í Vestmannaeyjum í gær að aflokinni makrílvertíð en skip Ísfélagsins hafa landað makrílafla sínum á Þórshöfn. Heimaey VE 1 bættist í flota Ísfélagsins í vor og leysti samnefnt skip af hólmi. Skipið, sem áður hét Pathway PD 165, var … Halda áfram að lesa Heimaey VE 1

Huginn VE 55 með 1100 tonn af makríl

2411. Huginn VE 55. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Huginn VE 55 kom til Vestmannaeyja í gærmorgun með um 1100 tonn af makríl og tók Tryggvi Sig þessa mynd þá. Það er Vinnslustöðin sem gerir hann út en um skipið sem var smíðað í Chile árið 2001. má lesa hér. Með því að smella á myndina er … Halda áfram að lesa Huginn VE 55 með 1100 tonn af makríl

Heimaey VE 1 kom til heimahafnar í morgun

3060. Heimaey VE 1 ex Pathway PD 165. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Heimaey VE 1, hið nýja uppsjávarveiðiskip Ísfélagsins, kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum í morgun. Blíðskaparveður var í Vestmannaeyjum í morgun eins og þessi mynd Tryggva sýnir og ekki amaleg byrjun á Sjómannadagshelginni. Skipið, sem áður hét Pathway PD 165, er allt hið glæsilegasta … Halda áfram að lesa Heimaey VE 1 kom til heimahafnar í morgun

Heimaey VE 1 seld til Noregs

2812. Heimaey VE 1. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Ísfélag hf. hefur selt Heimaey VE 1 til norska félagsins Andrea L AS. og í kvöld kll 20:00 lét hún síðasta sinn úr heimahöfn í Eyjum. Áfangastaðurinn er Maloy en þar verður skipið afhent norskum kaupendum í næstu viku. Tryggvi Sigurðsson tók meðfylgjandi mynd í kvöld. Í … Halda áfram að lesa Heimaey VE 1 seld til Noregs

Víkingur AK 100

2882. Víkingur AK 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Nóta- og togskipið Víkingur AK 100 liggur hér við bryggju í Reykjavík um páskana og veðurblíða algjör. Það er Brim hf. sem gerir Víking út en hann var smíðaður í skipasmíðastöðinni Celiktrans Deniz Insaat Ltd í Tyrklandi og kom til landsins í lok árs 2015. Með því … Halda áfram að lesa Víkingur AK 100

Júpíter VE 161 í slipp

2618. Júpíter VE 161 ex Jóna Eðvalds SF 200. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Júpíter VE 161 sem hér sést í slipp í Reykjavík hét áður Jóna Eðvalds SF 200 og er í eigu Horneyjar ehf., félags sem er í sameiginlegri eigu Skinneyjar-Þinganess og Ísfélagsins. Júpíter var smíðaður í Noregi árið 1975 og bar nafnið Birkeland … Halda áfram að lesa Júpíter VE 161 í slipp

Margrét og Vilhelm Þorsteinsson

3038. Margrét EA 710 ex Christina S FR 224. - 2982. Vilhelm Þorsteinsson EA 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Samherjaskipin Margrét EA 710 og Vilhelm Þorsteinsson EA 11 liggja hér við Oddeyrarbryggju en myndina tók ég um helgina. Margrét EA 710 er 2,411 BT að stærð, lengd skipsin er 72 metrar og breiddin 15 metrar … Halda áfram að lesa Margrét og Vilhelm Þorsteinsson