Ásgrímur Halldórsson SF 250

2780. Ásgrímur Halldórsson SF 250 ex Lunar Bow. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Jón Steinar tók þessar myndir af loðnuskipinu Ásgrími Halldórssyni SF 250 í gærmorgun en það var statt fyrir utan Grindavík. Skipið fyllti sig svo í tveim köstum og gaf Venusi NS 150 rest. Ásgrímur Hallórsson SF 250 var smíðaður hjá Simek skipamíðastöðinni … Halda áfram að lesa Ásgrímur Halldórsson SF 250

Hákon fær síld frá Ásgrími á Breiðafirði

2780. Ásgrímur Halldórsson SF 250 ex Lunar Bow. Aðsend mynd. Þessi mynd barst síðunni í dag en hún var tekin á Breiðafirði og sýnir Ásgrím Halldórsson SF 250 með síldarnótina á síðunni. Myndin var tekin um borð í Hákoni ÞH 250 sem var að dæla síld úr nótinni hjá Ásgrími. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Hákon fær síld frá Ásgrími á Breiðafirði

Örfirisey RE 14

1030. Örfirisey RE 14. Ljósmynd úr einkasafni. Örfirisey RE 14 kemur hér að bryggju á Húsavík í febrúarmánuði árið 1967. Húsavík var fyrsta höfn sem hún kom í eftir heimsiglingu frá Hollandi þar sem skipið var smíðað, nánar tiltekið í Deest. Um Örfirisey má lesa hér og þar kemur m.a fram af hverju Húsavík var fyrsta höfnin … Halda áfram að lesa Örfirisey RE 14

Örn KE 13

1012. Örn KE 13 ex Örn SK 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sumarið 1987 kom loðnuskipið Örn KE 13 úr miklum breytingum sem framkvæmdar voru í V-Þýskalandi. Helstu breytingarnar voru lenging á skipinu um sex metra, sett á það perustefni og því slegið út að aftan og breytt fyrir togveiðar. Á myndinn er Örn að koma til hafnar á Húsavík en … Halda áfram að lesa Örn KE 13

Örn KE 13 í Krossanesi

1012. Örn KE 13 ex Örn SK 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér liggur loðnuskipið Örn KE 13 við bryggju í Krosssanesi um árið að lokinni löndun. Örn var upphaflega RE 1 og gerður út af Hinu almenna fiskveiðifélagi hf. í Reykjavík sem lét smíða hann í Noregi og kom hann til landsins í ágústmánuði árið … Halda áfram að lesa Örn KE 13 í Krossanesi

Vilhelm Þorsteinsson EA 11

2982. Vilhelm Þorsteinsson EA 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hér gefur að líta Samherjaskipið Vilhelm Þorsteinsson EA 11 við bryggju í heimahöfn sinni Akureyri. Jólaserían komin upp fyrir nokkrum dögum en myndin var tekin síðdegis í dag og ekki var vindinum fyrir að fara við pollinn. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Vilhelm Þorsteinsson EA 11