220. Víkingur AK 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Víkingur AK 100 frá Akranesi er hér á toginu á rækjumiðunum úti fyrir Norðurlandi, sennilega sumarið 1988. Um Víking er litlu við að bæta enda hefur hann áður borið fyrir augu þeirra sem sækja síðuna heim. Sögu Víkings AK 100 má lesa í greina Haraldar Bjarnasonar í Skessuhorni Með … Halda áfram að lesa Víkingur á toginu
Flokkur: Nóta- og togskip
Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11
1031. Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11 ex Magnús NK 72. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11 hét upphaflega Magnús NK 72 og var smíðaður fyrir Ölver hf. á Neskaupsstað. Smíðin fór fram árið 1967 í Lindstöl Skips & Baatbyggeri A/S í Risör í Noregi og var með smíðanúmer 263. Magnús, sem var 274 … Halda áfram að lesa Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11
Ingunn AK 150
2388. Ingunn AK 150. Ljósmynd Pétur Helgi Pétursson 2001. Ingunn AK 150 er hér með nótina á síðunni á loðnuvertíðinni árið 2001 en skipið var smíðað fyrir HB á Akranesi í Chile árið 2000. Ingunn AK 150 er 1218 brl/2000 BT að stærð. Hún er 73 metrar að lengd og breiddin er 12,6 metrar. Aðalvélin … Halda áfram að lesa Ingunn AK 150
Sigurður VE 15
183. Sigurður VE 15 ex Sigurður RE 4. Ljósmynd Sigmar Ingi Ingólfsson Nú þegar loðnuveiðar mega hefjast að nýju er ekki úr vegi að birta myndir af einu fallegasta loðnuskipi sem Íslendingar hafa átt. Sigurður VE 15, upphaflega síðutogarinn Sigurður ÍS 33 og síðar RE 4, smíðaður í Þýskalandi árið 1960 fyrir Ísfell h/f á … Halda áfram að lesa Sigurður VE 15
Ljósfari RE 102
973. Ljósfari RE 102 ex Kári Sölmundarson RE 102. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Loðnubáturinn Ljósfari RE 102 er hér við bryggju í Sundahöfn vel hlaðið loðnu en myndin var tekin ca. 1985 Upphaflega hét báturinn Dagfari ÞH 40 og var smíðaður árið 1965 í Boizenburg A-Þýskalandi fyrir bræðurnar Stefán og Þór Péturssyni á Húsavík. Árið 1967 … Halda áfram að lesa Ljósfari RE 102
Hólmaborg SU 11
1525. Hólmaborg SU 11 ex Eldborg HF 13. Ljósmynd Sigmar Ingi Ingólfsson 2003. Á þessum myndum má sjá loðnuskipið Hólmaborgu SU 11 sigla fram hjá Grindavík vorið 2003, sennilega á heimstími til Eskifjarðar með fullfermi af loðnu. Myndirnar tók Sigmar Ingi Ingólfsson þá skipverji á Erni KE 13. Hólmaborg SU 11 hét upphaflega Eldborg HF … Halda áfram að lesa Hólmaborg SU 11
Guðmundur Ólafur í slipp á Akureyri
1020. Guðmundur Ólafur ÓF 91 ex Krossanes SU 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Guðmundur Ólafur ÓF 91 frá Ólafsfirði er hér uppi í slippnum á Akureyri um árið en hann var keyptur til Ólafsfjarðar í ársbyrjun 1983. Upphaflega hét skipið Börkur NK 122 frá Neskaupstað, smíðaður í Noregi árið 1966. Árið 1972 fékk hann nafnið Bjarni … Halda áfram að lesa Guðmundur Ólafur í slipp á Akureyri
Hákon ÞH 250
1807. Hákon ÞH 250. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1989. Nóta- og togskipið Hákon ÞH 250 frá Grenivík er hér að rækjuveiðum úti fyrir Norðurlandi sumarið 1989. Hákon kom til landsins í desembermánuði 1987 en frá komu hans sagði svo í 4 tbl. Ægis 1988: Nýtt nóta- og togveiðiskip bættist við fiskiskipastól Íslendinga 18. desembers.l., en þá … Halda áfram að lesa Hákon ÞH 250
Erling KE 45
1361. Erling KE 45 ex Seley SU 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Erling KE 45, sem sést hér á myndinni fyrir ofan við bryggju á Húsavík, var smíðaður í Noregi árið 1969 en keypt hingað til lands árið 1974. Upphaflega hét skipið Stjernøysund og var frá Hammerfest. Það var smíðað eins og áður segir árið 1969 … Halda áfram að lesa Erling KE 45
Margrét EA 710 seld til Færeyja
2903. Margrét EA 710 ex Antares LK 419. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Útgerð færeyska uppsjávarveiðiskipsins Christian í Grótinum hefur keypt uppsjávarveiðiskipið Margréti EA 710 af Samherja. Skipið verður afhent strax upp úr áramótunum. Samherji keypti skipið frá Hjaltlandseyjum árið 2015 þar sem það bar nafnið Antares LK 419 og hafði heimahöfn í Hvalsey. Frá því … Halda áfram að lesa Margrét EA 710 seld til Færeyja









