686. Arnarborg HU 11 ex Arnarborg KE 26. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Arnarborg HU 11 liggur hér við bryggju á Skagaströnd um árið en Hólanes hf. keypti bátinn þangað árið 1986. Upphaflega hét báturinn, sem smíðaður var í Danmörku árið 1958, Hafnarey SU 110 með heimahöfn á Breiðdalsvík. Báturinn var 78 brl. að stærð og átti … Halda áfram að lesa Arnarborg HU 11
Author: Hafþór Hreiðarsson
Narfi SU 680
2485. Narfi SU 680. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Narfi SU 680 var smíðaður í Trefjum í Hafnarfirði árið 2001 og var af gerðinni Cleopatra 31. Myndin var tekin sumarið 2004 en síðar sama ár var báturinn seldur til Húsavíkur þar sem hann fékk nafnið Auður Þórunn ÞH 344. Sumarið 2007 keypti Útgerðarfélag Bolungarvíkur ehf. bátinn … Halda áfram að lesa Narfi SU 680
Jón á Hofi kom og fór
1645. Jón á Hofi SI 42 ex Jón á Hofi ÁR 42. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Jón á Hofi SI 42 sem Ísfélagið hf. gerir út til rækjuveiða kom til Húsavíkur í dag til að taka veiðafæri um borð. Jón á Hofi var áður ÁR 42 en einkennisstöfunum var breytt í SI sumarið 2024. Áður hét … Halda áfram að lesa Jón á Hofi kom og fór
Alli Júl ÞH 5
1487. Alli Júl ÞH 5 ex Ásbjörg RE 79. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1999. Alli Júl ÞH 5 kemur hér til hafnar á Húsavík í desembermánuði árið 1999 og hafði þá verið að veiðum sunnan við land ef ég man rétt. Upphaflega hét báturinn Ásbjörg ST 7 frá Hólmavík en hún var síðust í röð 50 … Halda áfram að lesa Alli Júl ÞH 5
Fjølnir á landleið í dag
2714. Fjølnir GK 757 ex Sævík GK 757. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Á þessum myndum Jóns Steinars gefur að líta línubátinn Fjølnir á landleið til Grindavíkur í dag. Aflinn var einhver 8-9 tonn sem fékkst úti í Grindavíkurdýpi hvar hann var að eltast við ýsu. Fjølnir hét áður Sævík GK 575 en upphaflega Óli … Halda áfram að lesa Fjølnir á landleið í dag
María Júlía á siglingu fyrir Bjargtanga
151. María Júlía BA 36 ex björgunar- og varðskipið María Júlía. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Þessa flottu mynd tók Jón Páll Ásgeirsson c.a 1977-8 en hún sýnir Maríu Júlíu BA 36 á siglingu fyrir Bjargtanga. María Júlía var smíðuð sem björgunar- og varðskip í Frederikssund Skibsværft í Frederikssund í Danmörku árið 1950 fyrir Ríkissjóð Íslands. … Halda áfram að lesa María Júlía á siglingu fyrir Bjargtanga
Dalaröst ÁR 63
1639. Dalaröst ÁR 63 ex Jón Bjarnason SF 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1999. Dalaröst Ár 63 kemur að bryggju á Húsavík um árið en báturinn var þarna nýkeyptur til Húsavíkur. Útgerðarfélagið Flóki ehf. keypti hann frá Þorlákshöfn og skömmu síðar varð Dalaröstin ÞH 40. Báturinn var smíðaður í Noregi 1978 en keyptur til landsins fjórum … Halda áfram að lesa Dalaröst ÁR 63
Vésteinn að draga línuna í dag
2908. Vésteinn GK 88. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir af línubátnum Vésteini GK 88 þar sem hann var að draga línuna rétt utan við Grindavík í dag. Að sögn ljósmyndarans var mokfiskirí hjá köllunum og þurftu þeir að fara inn til Grindavíkur um hádegisbilið þar sem landað var um 12 … Halda áfram að lesa Vésteinn að draga línuna í dag
Oddverji SI 76
2497. Oddverji SI 76 ex Oddverji ÓF 76. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Oddverji SI 76, sem hér sést koma til hafnar á Siglufirði sumarið 202, hét upphaflega Portland VE 97. Hann er af gerðinni Gáski 1100 d, smíðaður árið 2001 hjá Bátasmiðjunni Mótun. Potland var seldur frá Vestmanneyjum til Grundarfjarðar árið 2005 þar sem hann … Halda áfram að lesa Oddverji SI 76
Hafborg SI 4
2458. Hafborg SI 4 ex Þröstur II ÞH 347. Ljósmynd Hafþór Hreiðarssom 2012. Hafborg SI 4 kemur hér að landi á Siglufirði sumarið 2012 en báturinn er af Gáskagerð frá Bátasmiðjunni Mótun. Upphaflega hét báturinn, sem smíðaður var árið 2001, Þröstur II ÞH 347 með heimahöfn á Raufarhöfn. Árið 2005 var hann seldur til Siglufjarðar … Halda áfram að lesa Hafborg SI 4









