Við bryggju í Teis

Í Teis rétt innan við Vigo. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Næsti bær utan við Chapela við Vigoflóann er Teis og þar eru bryggjur, flotkvíar og slippar. Ég hjólaði þangað um sl. helgi og tók nokkrar myndir og hér koma þrjár þeirra. Þarna er að mér sýnist aðallega unnið að viðgerðum og smíðum á skipum en … Halda áfram að lesa Við bryggju í Teis

Morten Einar H-402-AV

IMO 9205201. Morten Einar H-402-AV ex Odd Lundberg T-260-G. Ljósmynd Baldur Sigurgeirsson 2019. Húsvíkingurinn Baldur Sigurgeirsson starfar sem vélstjóri á norskum dráttarbáti og tók hann þessa mynd af Mortein Einar H-402-AV í Torangsvåg í dag. Morten Einar H-402-AV hét upphaflega Skar Senior og var smíðaður árið 2003 í Aveiro í Portúgal fyrir Norðmenn. Hann er … Halda áfram að lesa Morten Einar H-402-AV

Farsæll GK 162

1636. Farsæll GK 162 ex Lovisa. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Farsæll GK 162 við bryggju í Grindavík um árið en hann hét upphaflega Lovisa og varr smíðaður árið 1977 hjá skipasmíðastöðinni Grönhögens Sevets A/B í Dagerhamn í Svíþjóð. Þorgeir Þórarinsson ofl. keyptu hann til Grindavíkur og bættist hann í flotann í september árið 1982. Farsæll GK … Halda áfram að lesa Farsæll GK 162

Breki VE fiskaði nær 7.800 tonn á fyrsta útgerðarárinu sínu

2861. Breki VE 61. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Breki VE 61 fór í fyrsta sinn til veiða frá Vestmannaeyjum þann 24. júlí 2018 og áhöfnin og togarinn héldu upp á ársafmælið með því að koma til hafnar að morgni 24. júlí sl. með fullfermi, enn einu sinni. Frá þessu segir á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar og þar … Halda áfram að lesa Breki VE fiskaði nær 7.800 tonn á fyrsta útgerðarárinu sínu

Halla Daníelsdóttir RE 770

2728. Halla Daníelsdóttir RE 770 ex Hringur GK 18. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Makrílveiðibáturinn Halla Daníelsdóttir RE 770 kom til Grindavíkur í gærkveldi og þá tók Jón Steinar þessa mynd. Halla Daníelsdóttir RE 770 er af gerðinni Seigur 1120 og var smíðaður á Siglufirði árið 2006. Upphaflega hét báturinn Hringur GK 18. Með því að … Halda áfram að lesa Halla Daníelsdóttir RE 770