1416. Sighvatur GK 57 línuskip Vísis hf. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Eigendur sjávarútvegsfyrirtækjanna Vísis hf. og Þorbjarnar hf. hafa hafið viðræður um að leggja eignir félaganna inn í nýtt fyrirtæki og standa saman að rekstri nýs sjávarútvegsfyrirtækis í Grindavík. Í tilkynningu segir að Vísir og Þorbjörn séu rótgróin og öflug sjávarútvegsfyrirtæki, svipuð að stærð og … Halda áfram að lesa Ræða sameiningu Vísis og Þorbjarnarins
Author: Hafþór Hreiðarsson
Aðalbjörg RE 5
1755. Aðalbjörg RE 5. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Dragnótabáturinn Aðalbjörg RE 5 kemur til hafnar í Grindavík á dögunum en hún var hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1987. Aðalbjörg RE 5 var lengd árið 1995 og er hún nú 21,99 metrar að lengd og mælist 59 brl./68 BT að stærð. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Aðalbjörg RE 5
Nýja brúin fór á Keili í dag
1420. Keilir SI 145 ex Keilir GK 145. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Nýja brúin á Keili SI 145 var hífð um borð í dag og komið fyrir á sínum stað en báturinn stendur uppi í Húsavíkurslipp. Áður hafði ljósavélina verið hífð í vélarúmið sem og geymasettin. Brúin hífð á Keili í morgun. Ljósmynd Þ.A 2019. … Halda áfram að lesa Nýja brúin fór á Keili í dag
Tasermiut GR 6-395 á siglingu
IMO 8705838. Tasermiut GR 6-395 ex Labrador Storm. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Grænlenski rækjutogarinn Tasermiut GR 6-395 er hér á siglingu í Meðallandsbugtinni síðdegis í dag. Togarinn var smíðaður í Langsten Slip & Båtbyggeri AS í Noregi árið 1988. Hann er 75,90 metrar að lengd, 13 metra breiður og mælist 2,590 GT að stærð. Samkvæmt … Halda áfram að lesa Tasermiut GR 6-395 á siglingu
Einum of mikið af því góða
2900. Beitir NK 123 ex Gitte Henning S 349. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019 Eins og kom fram á síðunni var Beitir NK 123 við veiðar á síldarmiðunum austur af landinu í gær. Flottrollið var látið fara um hádegi í gær og var það dregið í um 40 mínútur og reyndist aflinn vera 1.320 tonn. Sturla Þórðarson skipstjóri … Halda áfram að lesa Einum of mikið af því góða
Vörður ÞH 44 í reynslusiglingu
2962. Vörður ÞH 44. Ljósmynd Fésbókarsíða Gjögurs hf. 2019. Hér koma nokkrar myndir af Verði ÞH 44 í reynslusiglingu í Noregi. 2962. Vörður ÞH 44. Ljósmynd Fésbókarsíða Gjögurs hf. 2019. 2962. Vörður ÞH 44. Ljósmynd Fésbókarsíða Gjögurs hf. 2019. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. By clicking … Halda áfram að lesa Vörður ÞH 44 í reynslusiglingu
Beitir NK 123 dælir síld um borð
2900. Beitir NK 123 ex Gitte Henning S 349. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Beitir NK 123, skip Síldarvinnslunnar í Neskaupsstað, er hér að síldveiðum í dag, nánar tiltekið á Glettingarnesgrunni. Beitir hét áður Gitte Henning S 349 og var smíðaður í skipasmíðastöðinni Western Baltija Shipbuilding í Litháen en kom nýr til Danmerkur í apríl 2014. Beitir NK 123 … Halda áfram að lesa Beitir NK 123 dælir síld um borð
Hákon EA 148 á miðunum
2407. Hákon EA 148. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019 Hérna koma tvær glænýjar myndir af Hákoni EA 148 en Hólmgeir Austfjörð tók þær á miðunum í morgun. Hákon EA 148 var smíðaður fyrir Gjögur hf. í Asmarskipasmíðastöðina í Talcahuano í Chile og kom til landsins 10. ágúst 2001. Hákon EA 148 er 65,95 metrar að lengd, … Halda áfram að lesa Hákon EA 148 á miðunum
Ingimundur RE 387
1198. Ingimundur RE 387 ex Trausti KE 73. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson Ingimundur RE 387 var smíðaður árið 1971 hjá Bátalóni h/f í Hafnarfirði og hét upphaflega Gautur ÁR 19. Báturinn var 11 brl. að stærð búinn 98 hestafla Power Marinevél. Ingimundur RE 387 var að koma til hafnar í Sandgerði þegar myndin var tekin upp … Halda áfram að lesa Ingimundur RE 387
Wilson Norfolk á Skjálfanda
IMO 9430997. Wilson Norfolk. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flutningaskipið Wilsion Norfolk hefur legið við festar á Skjálfanda síðustu daga en í dag var það komið að Bökugarðinum og uppskipun hafin. Skipið, sem kom með hráefnisfarm til PCC á Bakka, var smíðað árið 2011. Það siglir undir fána Möltu og er með heimahöfn í Valletta. IMO … Halda áfram að lesa Wilson Norfolk á Skjálfanda









