Sæbjörg í slipp á Akureyri

1132. Sæbjörg EA 184 ex Sæljón SH 9. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1984. Hér var verið að skvera Sæbjörgu EA 184 frá Grímsey í slippnum á Akureyri vorið 1984. Sæbjörg hét upphaflega Sæljón BA 100 og var smíðuð í Bátalóni fyrir Breið hf. á Patreksfirði árið 1970. Sumarið 1971 var Sæljónið selt til Ólafsvíkur og varð … Halda áfram að lesa Sæbjörg í slipp á Akureyri

Ilivileq í Reykjavíkurhöfn

IMO: 9830434. Ilivileq GR 2-201. Ljósmynd Magnús Jónsson. Grænlenski frystitogarinn Ilivileq GR 2-201 lá í höfn í Reykjavík yfir hátíðarnar og tók Magnús Jónsson þessa mynd af honum prýddum jólaljósum. Togarinn var smíðaður í spænsku skipasmíðastöðinni Astilleros Armon Gijon á Norður-Spáni og afhentur á vordögum 2020. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Ilivileq í Reykjavíkurhöfn

Vigri RE 71 í slipp

2184. Vigri RE 71. Ljósmynd Magnús Jónsson. Frystitogarinn Vigri RE 71 hefur verið í slipp í Reykjavík yfir hátíðarnar og tók Magnús Jónsson þessa mynd af honum prýddum jólaljósum. Vigri RE 71 var smíðaður fyrir Ögurvík hf. í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S í Flekkefjord í Noregi árið 1992. Togarinn, sem er 1.217 brl. að … Halda áfram að lesa Vigri RE 71 í slipp

Bátar í slipp á Nýársdegi

Bátar í slipp á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Nýársmynd sem tekin var við slippinn á Húsavík eftir hádegi í dag en þar eru uppi tveir af bátum Norðursiglingar. Þetta eru Náttfari, smíðaður í Stykkishólmi árið 1965 og Sæborg, smíðuð á Akureyri árið 1977. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana … Halda áfram að lesa Bátar í slipp á Nýársdegi

Gleðilegt nýtt ár-Happy new year-Feliz año nuevo

Húsavík 010121. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skipamyndir.com óskar öllum þeim sem sækja síðuna heim gleðilegs nýs árs með þökk fyrir innlitið á því gamla sem nú er liðið í aldanna skaut. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher … Halda áfram að lesa Gleðilegt nýtt ár-Happy new year-Feliz año nuevo

Björn Jónsson ÞH 345

7456. Björn Jónsson ÞH 345 ex Hilmir ST 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2014. Grásleppubáturinn Björn Jónsson ÞH 345 frá Raufarhöfn kemur hér að landi á Húsavík þann 5. maí árið 2014. Doddi Ásgeirs ehf. á Húsavík gerði bátinn út þessa grásleppuvertíðina en hann var í eigu Útgerðarfélagsins Röðuls ehf. á Raufarhöfn. Þórður Birgisson skipstjóri og … Halda áfram að lesa Björn Jónsson ÞH 345

Björg Jónsdóttir ÞH 321

263. Björg Jónsdóttir ÞH 321 ex Gandí VE 171. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Björg Jónsdóttir ÞH 321 frá Húsavík er hér á síldarvertíð austanlands sennilega haustið 1986. Upphaflega hét báturinn Þorbjörn II GK 541 og var smíðaður árið 1964 fyrir Hraðfrystihús Þórkötlustaða h/f í Grindavík. Smíðin fór fram í Djupvík í Svíþjóð en báturinn var 168 … Halda áfram að lesa Björg Jónsdóttir ÞH 321

Olíutaka vestan við Svalbarða

Olíutaka við Svalbarða. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2020. Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á rækjufrystitogaranum Reval Viking tók þessa mynd í nótt þegar togarinn var að taka olíu. Olíutakan fór fram vestan við Svalbarða en þangað kom olíuskipið Nordstraum með olíu fyrir togarann. "Nánar tiltekið á 78 gráðum norður og 12 gráðum austur. Beint vestur af Isfjord". Sagði … Halda áfram að lesa Olíutaka vestan við Svalbarða